29.12.2008 | 21:26
Eitthvað
Þá er Vertinn kominn í höfuðborgina til að dvelja þar fram yfir áramótin. Það er auðvitað segin saga að það þykja tíðindi er margnefnd lætur sjá sig í Sódómu, borg óttans, enda óttablandin virðing borin fyrir flestum gestum sem koma að vestan. Frekar rólegt er þó yfir bænum er þessi orð eru skrifuð enda er klukkan er vel gengin í tvö um nótt og lítið meira líf í borginni en í Bolungarvík um svipað leiti. Einn og einn bíll rennur þó hjá eins og gerist heima er trillukarlarnir fara á stjá um miðjar nætur og skemmtistaðurinn Players sefur hér rétt hjá, líkt og Kjallarinn gerir í hálsakotinu heima.
Íbúð verkalýðsfélagsins tekur vel á móti Vestfirðingunum eins og ætíð myndirnar á veggjunum tala sínu máli og segja söguna að heiman sem er svo kunnugleg. Tölvan mín er þó ekki tengd veraldravefnum og setur það vissulega strik í reikninginn hjá Vertinum sem situr oftar en ekki límd við tölvuskjáinn og ritar hina og þessa vitleysuna á bloggið. Þetta ferðablogg er skrifað á þar til gert word skjal sem sett verður í birtingu um leið og tölvan tengist. Smettisskruddan bíður átekta en töluverður tími fer í hana þegar vel liggur á Vertinum og þar eru vinir á víð og dreif sem gaman er að spjalla við. Ferðin suður gekk þó vel þrátt fyrir blauta vegi og holótta hér og þar. Betra hefði verið ef brúin yfir Mjóafjörðinn hefði verið tilbúin en nú hefði trúlega verið lag í þessu blíðskaparveðri að klára hana og hleypa á hana umferð.
Einn og einn flugeldur sást springa hér og þar í borginni í næturhúminu og búast má við að stórbrotin flugeldasýning verði er nýju ári verður fagnað víðs vegar um landið. Flugeldasala er mikil tekjulind björgunarsveitanna á landinu og afar brýnt að styðja við bakið á þeim og lýsa upp næturhúmið með fallegum ljósum í leiðinni.
Morgundagurinn ber í skauti sér eitthvað skemmtilegt, auk þess þyrfti Vertinn að viða að sér heimildum í nokkuð stórt verkefni sem er handan hornsins. Það er vinna sem tengist skrifum og upplýsingaöflun og er þetta eitt verkefnið sem dúkkaði upp rétt sí svona. Það er eitt af því sem gerist án þess að títtnefnd fái rönd við reist og er ætlað að vinna. Ekki er vitað með vissu hvert sú vinna kann að leiða margnefnda en hver veit nema það verði aðgengilegt einn góðan veðurdag og á borð fyrir alþjóð til að njóta.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.