27.12.2008 | 21:53
Líf og fjör á Fróni
Gærkvöldið með Kalla Hallgríms var alveg stórskemmtilegt. Símalínan brá þó á það ráð að verða eitthvað hrekkjótt og sló kortaposann út af laginu sem gerði það að verkum að aðeins hægði á millifærslum á íslenskum krónum á barnum fyrst í stað og voru gjaldeyrisviðskipti í lágmarki. Allt gekk þó eins og blómstrið eins áður en yfir lauk og Vertinn dillaði sér í takt við óminn frá gítaristanum. Gunna Ásgeirs fór flikk flakk heljarstökk á barnum eins og hennar er von og vísa og dansaði hún trylltan dans er hinir og þessir gestasöngvarar tóku lagið við mikinn fögnuð viðstaddra. Dansað var á sama litla blettinum og súlurnar dilluðu sér í takt við hljómfallið og dans gestanna og húsið vaggaði sér í lendunum og naut þess að hafa allt þetta líf innanborðs. Kjallarinn er opinn í kvöld að vanda og allir eru velkomnir. Aftur á móti er lokað milli jóla og nýárs en opið á miðnætti á Nýársnótt eins og verið hefur undanfarin ár.
Höfuðborgin kallar á Vertinn í Víkinni og hennar skyldulið á morgun og lagt af stað er allir eru klárir. Þar verður áð í nokkra daga eða þar til nýtt ár hefur gengið í garð. Akureyri er svo næsti viðkomustaður títtnefndrar beint í framhaldinu og heyrst hefur að öllum verði gefið frí í Eyjafirðinum rétt á meðan téður Vert staldrar þar við og slegið verður upp hátíð í bænum til að fagna. Allir grænmetisbændur fá þó að vatna plöntum sínum eins og til þarf og bændur fá að fóðra skepnurnar enda annað ekki inn í myndinni. Jólahúsið verður þó vonandi haft opið í tilefni af heimsókninni og ein og ein pilsaverslun með glingurvörum höfð ólæst rétt á meðan.
Þjóðarsorg verður aftur á móti hér vestra á meðan oftnefnd er í burtu en gleðjast má þó yfir því að alltaf kemur Vertinn aftur og aftur og væntanlega sprækari en aldrei fyrr.
.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.