16.12.2008 | 01:40
Fastar skorður
Aðeins er að róast hjá Vertinum í Víkinni. Dagarnir eru engan veginn nógu langir til að rúma allt það sem títtnefnd þarf að gera um þessar mundir og sólarhringurinn líður of hratt fyrir smekk margnefndrar. Stiklað skal hér á stóru hvað viðburði helgarinnar varðar og myndum skal dritað eftir hendinni. Mikið líf og fjör var í Einarshúsi og því frá mörgu að segja.
Upplestur úr jólabóknum á föstudaginn
Kristín Theódóra læknir las fyrir gesti Einarshúss í hádeginu á föstudaginn fyrir fullu húsi gesta. Án efa hafa margir hugsað gott til glóðarinnar og ætlað sér að láta lækninn skrifa upp á recept fyrir pillum og mixtrúrum, fyrst hún var þarna á annað borð en enginn tími gafst til þess að sjúkdómsgreina veislugesti sem voru reyndar afar heilbrigðir að sjá. Vertinn varð að galdra fram aukaborð til að koma öllum fyrir sem vildu njóta stundarinnar og Einarshús laðaði sig að öllum þeim sem vildu heyra. Fólk frá öllum hugsanlegum þjóðernum var samankomið í húsi sorgar og gleði og allt fór vel fram þrátt fyrir að sumir skildu ekki innihald sögunnar vegna hve framandi tungumálið er þeim.
Hjördís Jóns og Elli Ketils mættu einnig í þetta sama hádegi og tóku lagið. Þau hljómuðu gríðarlega vel saman og var eins og englar af himnum ofan hefðu sest upp hjá Vertinum. Jólalögin ómuðu í takt og sungið var með af innlifun enda nálgast jólin óðfluga og upplagt að syngja svoldið saman á fallegum dögum á aðventu. Elli Ketils er vanur allskyns uppistandi enda er hann hrókur alls fagnaðar hvar sem hann kemur þá sér í lagi ef hann er staddur í útlöndum en þá kyrkja hann gleðisöngva fyrir mann og annan. Hjödda kann einnig vel sitt fag og er afar flink á gítarinn og kann gripin utanað og heldur fullkomlega lagi.
Mitt í þessu hádegi þegar allir hámuðu í sig unaðslegan pottrétt mætti Pétur Magg með vestfirska kvótasvindlið undir hendinni. Hann færði húsinu spilið að gjöf svo Bolvíkingar geti fengið að kynnast því hvernig kvótabrask gengur fyrir sig í hugskoti þeirra sem eiga heiðurinn af þessu stórskemmtilega spili.
Pétur kom að vinnu við kvótasvindlið og hefur án efa svindlað til að koma ár sinni vel fyrir borð og nappað til sín kvóta í fúski og braski en engu að síður var það vel hugsað hjá honum að færa títtnefndri eitt spil að gjöf af þeim 150 eintökum sem gerð voru. Það á án efa eftir að koma sér vel í framtíðinni. Hann þurfti þó ekkert að svindla sér inn í Einarshús enda stendur það honum, líkt og öðrum, ávallt opið.
Pabbi auðvitað mætti til að hlusta og borða enda er mamma ekki heima til að elda ofan í þennan mikla matmann og kunni hann vel að meta trakteringarnar. Guðfinna Hreiðarsdóttir mun lesa upp úr bók sinni í hádeginu á föstudaginn kemur en ekki er alveg búið að skipuleggja til enda hverjir fleiri láti ljós sitt skína.
Jólahlaðborðið á laugardagskvöldið
Það var eitt af þeim kvöldum í Einarshúsi sem verður minnst um aldur og eilífð og ritað í rúnir minninganna meðan títtnefnd man eitthvað að ráði. Það kvöld heppnaðist frábærlega. Maturinn þótti æðislega góður og þjónustan til fyrirmyndar í alla staði. Framúrskarandi matreiðslumenn sáu um allar trakteringar og hantéringar og veisluborðið var eins og listaverk og allt gekk eins blómstrið eina.
Dagskrá sem auglýst var á borðhaldið sem ber heitið "Úti er alltaf af snjóa" sló í gegn og viðstaddir voru hæstánægðir enda mjög frambærileg dagskrá í boði. Þar eru sungin lög eftir þá bræður Jónas og Jón Múla Árnasyni og engin var svikinn af þeim flutningi frábærra tónlistarmanna sem þar komu fram . Títtnefnd er eiginlega alveg bit hve Vestfirðir eru ríkir af hæfu listafólki sem skarar framúr á sínu sviði.
Ekki bætti svo úr skák að bílskúrsbandið Haltur leiðir blindan sló í gegn í orðsins fyllstu merkingu. Þeir voru alveg frábærir og er það sagt hér og skrifað af fullri alvöru enda væri annað marklaust og ekki boðlegt fyrir lesendur.
Stemningin var stórkostleg og fólkið sem mætti í svo innilega góðu stuði að leitun var að öðru eins. Sálin hans Jóns míns bliknar í samanburðinum við þessa stórgóðu hljómsveit og Stebbi Hilmars nær Gumma Sala svo ótrúlega vel að furðu vekur og undrun má telja.
Trommarinn var bara helv....góður og sýndi það að hann hafði engu gleymt og tryllingurinn við trommusláttin var svo mikill að einn kjuðinn fór í mask og rétt skaust framhjá gítarleikaranum sem mátti prísa sig sælan að halda lífi og limum. Engum tómmötum né eggjum var kastað í kappana en engum brjósthöldum né g-strengjum fleygt í áttina að þeim heldur svo þetta var undir kontról. Ég reikna fastlega með að þeir verði fastir liðir þegar á líður í Kjallaranum sem stundum er nefndur "Best geymda leyndamál Vestfjarða".
Fjölmargir gestasöngvarar tóku lagið. Þarna syngur Einar Hrafn
Elsa tekur lagið með hjómsveitinni
Einar Ægir tók í gítarinn með pabba sínum
Og Kuno var kátur með sínum mönnum
Og Beggi "sæbjúga" var kúl að venju og færði Vertinum gull, reykelsi og myrru úr hafinu til að hafa í Kjallaranum eins og hann gerir er hann kemur úr hverri veiðiferð . Á myndinni er hann með Lilju á Hóli að segja af sér frægðarsögur.
Kvöldverður á sunnudag
Til að slá punktinn yfri i-ið var starfsfólkinu mínu boði til kvöldverðar heima á Hólastíg á sunnudagskvöldið. Tilefnið var að kveðja tengdadótturina hana Þórunni sem unnið hefur hug og hjörtu allra sem kynnst hafa henni þetta undanfarna hálfa árið sem hún hefur dvalið hjá Vertinum og unnið í Einarhúsið.
Auðvitað væri tækifærið notað og smellt af öllum hópi barna, tengdabarna og fósturbarna títtnefndrar því kannski verður einhver bið á því að þau hittist aftur öll saman.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.