Heimkoma

Vertinn í Víkinni brá undir sig betri fætinum og dvaldi í höfuðborginni fáeina daga. Húsbóndinn og hundurinn voru í prófi og títtnefnd fékk að fljóta með svona rétt sí svona til að dilla sér hirst og her. Upplagt þótti að sýna sig og sjá aðra og tipla um á háhæluðu um hallir og moll og brosa sínu breiðasta við höfuðborgarbúum. Jólaverslun var þó ekki gerð að neinu marki enda eru verslandi hér vestra með framúrskarandi vöru á boðstólnum sem upplagt er að kaupa er líður að jólum.

Jólahlaðborðavertíðin er í algleymingi um þessar mundir svo tilhlýðilegt þótti að heiðra eitt slíkt með nærveru sinni á föstudagskvöld. Madonnu sjóvið í Broadway varð fyrir valinu og segjast verður alveg eins og er að Vertinn skemmti sér konunglega. Frábærir dansarar og söngvarar stigu á svið og ekkert var út á það að setja. Aðeins vantaði þó upp á að ungstirnið Jóhanna Guðrún væri nógu " glyðruleg" fyrir hlutverkið en Madonna er ekki beint þekkt fyrir sakleysi og englabossatakta.

Að jólahlaðborði loknu var uppáhaldsbar höfuðborgarinn heimsóttur en Thorvaldsen bar var einn sá besti hér áður þá sér í lagi vegna hins bragðgóða mohito drykks sem var einstakur í sinni röð meðan Vertinn var og hét drykkfeld. Núna bragðast vatnið ennþá betur og tilfinningin að vera allsgáð er svo frábær og æðisleg að það tekur varla tali. Músíkin var algjörlega æðislega skemmtileg þetta kvöld og það var svo einstaklega gaman að dansa og sleppa fram af sér beislinu. Ef gefa ætti kvöldinu einkunn fengið það ellefu af tíu mögulegum, Vertinn renndi í hlaðið um miðjan daginn með viðkomu í Enniskoti og Dæli eins og svo oft áður og það var gott að komast heim í jólasnjóinn.

Áfram líður þó tíminn og næg verkefnin bíða og helgin verður undirlögð veisluhöldum sem kalla á skipulagningu og annan tilverknað. Verið er að leggja síðustu hönd á skipulagningu skemmtanahalda um jólahátíðina og verið er að púsla einu og öðru saman svo allt gangi upp. Búist er við fjölmörgum í bæinn og sjálfsagt að hafa nóg við að vera fyrir fólkið. Trúbadorar koma héðan og þaðan og ætla sér að trylla lýðinn ef hægt er með einhverju móti. Það verður sagt frá því síðar en allar helgar héðan í frá á þessu herrans ári sem senn gengur í garð eru nánast fráteknar.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband