Helgin

Upplestur úr jólabókum í bland við ilmandi gúllassúpu 

Vertinn telur tilhlýðilegt svona rétt fyrir svefninn að gera almenningi það ljóst að hin margrómaða gúllassúpa verður á boðstólnum í hádeginu í dag, föstudaginn 28. nóvember. Með henni er hægt að hlusta á upplestur úr jólabókunum en Daðey Steinunn Einarsdóttir og Elín Jónsdóttir ætla að lesa upp úr bókum sem út komu fyrir jólin gestum og gangandi til yndisauka. Lesið verður upp úr jólabókum hvern föstudag á aðventunni til jóla.

Kjallarakeppnin

Kjallarakeppni verður á sínum stað um kvöldið og spyrill að þessu sinni er enginn annar en Finnbogi Bjarnason. Verðlaunin eru í fljótandi formi og tilboð verða eins og endranær á krepputíma svo betra er að mæta en að sitja heima í eymd og volæði.

Pétur og Einar

Á laugadagskvöldið verður ekta bolvískt leikhús í boði fyrir almenning því einleikurinn Pétur og Einar verður sýndur kl. 21:00. Skyldumæting fyrir þá sem er annt um sögu Bolungarvíkur og bráðnauðsynlegt fyrir hina að lyfta sér upp úr amstri hversdagsleikans og baða sig upp úr menningunni sem dafnar svo vel í nafla alheimsins, Bolungarvík

Biggi Olgeirs

Trúbadorinn ástsæli, Biggi Olgeirs mætir svo glaðbeittur með gítarinn um miðnættið á laugardagskvöldið og heldur uppi stuðinu út í nóttina.

Fjarstýrt

Eins og glöggt má sjá slær hjarta Einarshúss enn í traustum takti  þótt Vertinn bregði sér af bæ.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband