Smettisskruddan

Leið Vertsins í Víkinni lá í humátt til höfuðborgarinnar í dag eins of spáð var fyrir um í fyrri færslu. Ísafjarðardjúpið hefur iðað af síld sem hló tryllingshlátri yfir vestfirsku ferðalöngunum sem tilheyra hópi Vestfirðinga sem ekki mega veiða bein úr sjó. Aðgerðarlaus sátum við hjá er drekkhlaðnir bátarnir sigldu beinu stími með aflann í burtu til vinnslu annarsstaðar og eftir sátu miðin innantóm og sorgbitin líkt og kona sem fætt hefur barn sem tekið er strax við fæðinu og fært til vandalausra. Auðvitað er ekki rétt að taka hvítvoðunginn frá móður sinni nýfæddan heldur á hann að alast upp í faðmi vestfirskrar móður náttúru þar sem hann er borinn og barnfæddur svo sem flestir njóti góðs af uppeldi hans í formi aukinna starfa við meðhöndlun sjávarfangs úr hafinu sem umlykur Vestfirði.

Yoko Ono stóð svo hnarreist við friðarsúluna er rennt var í bæinn og Lennon var með í anda er súlan vísaði veginn allt til enda. Eftir smá spjall við tengdó var "viðhaldið" tekið upp úr tölvutöskunni og nokkrum bréfum svarað, nokkrar greinar settar á www.vikari.is en þá tók við sívaxandi vinna á Smettisskruddunni eða facebook. Þar laðast frænkur og frændur, vinir og kunningjar að margnefndri og aldagömul bekkjarsystkin dúkka upp sem legið hafa í dvala í hundrað ár. Einhverjir voru trúlega stungnir á snældu í fermingartímunum hjá Gunnari presti í denn og hafa nánast legið í dvala síðan. Nú er þó tími til að vakna því gömlu kerlingarnar og karlarnir sem fermdust með ungpíunni sem hér ritar eiga víst stórt afmæli í vor og tilmælum er beint til þeirra að skrá sig á smettið hið fyrsta og hafa upp á títtnefndiri og adda henni sem vin því heljarinnar húllumhæ er nefnilega fyrirhugað að vori með þessum framúrskarandi krakkahópi sem fermdist í Hólskirkju 20. maí árið 1979.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband