Að kveldi kominn

Einu sinni sem oftar er dagur að kveldi kominn. Dagurinn í dag byrjaði með morgunverðarheimsókn til Súðavíkur þar sem búið var að skipuleggja agnarlítinn AA fund. Þessi agnarlitli fundur gerði gæfumuninn fyrir daginn og geislandi bros Vertsins í Víkinni lýsti upp Ísafjarðardjúpið er ekið var heim á hárréttum hámarkshraða með jólalögin í botni í græjunum. Nú á að taka á því enda ekki seinna vænna að fara að lesa AA bókina af einhverri alvöru og kafa ofan í sálartetrið fyrir fullt og fast. Títtnefnd hefur komist að því að það er sáluhjálparatriði að komast til móts við hið innra sjálf og hræra í tilfinningapotti sálarlífsins til að höndla hina innri ró sem okkur öllum er svo nauðsynleg því ef  trassað er að vinna prógrammið myndast innri ókyrrð sem kallar á einn sopa sem er jafnan byrjunin á heilu baðkeri fullu af bjór sem er alls ekki á leið til Betlehem. Fyrir Vertinn í Víkinni eru litlir fundir þar sem hægt er að ræða heima og geyma við traustan AA vin það besta sem völ er á í stöðunni og hreint æðislegt að hafa tök á því einu sinni í viku.

Höfuðborgin bíður í ofvæni eftir Vertinum í Víkinni enda töluverður tími frá síðustu heimsókn en leggja á í hann eftir hádegi í dag. Ekki hefur heyrst af neinum mótmælum vegna þessarar heimsóknar enda á títtnefnd víst lítinn þátt í efnahagshruninu í landinu og því tilgangslaust að mótmæla veru hennar í borginni. Án efa má þó hugsa sér að mótmælendur láti það vera að mótmæla rétt á meðan margnefnd er í bænum til að raska ekki ró hennar í kaffihúsaferðum og öðrum viðlíka viðskiptaerindum sem eru bráðnauðsynlegar þeim sem hýrast á landsbyggðinni allan ársins hring. Reyndar má telja nokkuð öruggt að senn fari að bera á öfund í garð þeirra sem hafa búið í kreppu úti á landi í áratugi og kunna því að draga fram lífið í slíku ástandi, því má vænta þess að margnefnd fái þrekvaxinn lífvörð til að tryggja fyllsta öryggi á hverjum viðkomustað fyrir sig.

Trúlega var það hið mesta happ að hafa nýtt gróðann af tapinu í kreppunni til að fjárfesta í húsnæði á landsbyggðinni en ekki sett tapið af gróðanum í að kaupa hlutabréf sem nú eru einskis virði. Eitt sinn kom þó lítill fermingardrengur úr bankageiranum með brilljantín greitt hárið og með lakkrísbindið reyrt upp í barkakíli og ætlaði að stokka upp fjármál Vertsins og gera hana ríka. Til allrar hamingju var einhver ósýnileg hönd sem kom í veg fyrir það svo enn stendur það sem stendur. Eftir stendur að þrjú hús hér vestra eru í eigu títtnefndrar, tvö í Víkinni og eitt í næsta firði svo segja má með sanni að oftnefnd hefur í næg hús að vernda þótt kreppi að.

 

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband