23.11.2008 | 22:44
Haltur leiðir blindan
Hljómsveitin Haltur leiðir blindan æfir sig stíft þessa dagana til að getir slegið í gegn eftir jólahlaðborðið þann 13. desember. Takturinn er sleginn aftur og aftur til að geta haldið lagi kvöldið umrædda og trommarinn telur í ásamt bassaleikaranum sem reynir hvað hann getur að tolla í takti við gítaristanna. Þetta er eitt besta bílskúrsband sem leikið hefur í Kjallaranum fyrr og síðar og stendur svo sannarlega undir nafni. Þeir kappar æfa lög héðan og þaðan sem líkleg eru til að falla í hlustendur svo hægt sé að dilla sér við hljómfagra tóna. Ekki er vitað hversu mörg lög eru á efnisskránni en heyrst hefur eftir áreiðanlegum heimildum að bæði lögin sem kapparnir kunna séu orðin ofboðslega góð og slái út hvað hljómsveit sem er svo vænta má þess að fleiri lög komi í kjölfarið.
Þrátt fyrir að Vertinn hafi tekið þá ákvörðun að hætta að dekstra bæjarbúa til að koma á uppákomur í Einarshúsi í framtíðinni mun síðasta áminning birtast hér og nú því örfá sæti eru laus á hlaðborðið þann 13. desember og reyndar þann 6. des einnig.
Reiknað er með að þetta verði síðasta útkall á síðasta hlaðborð í húsi gleði og sorgar í eitt skipti fyrir öll.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Frábær hljónsveit og væri allveg til í Islenskt jólahlaðborð í Einarshúsi en verð bara að halda mig við það Enska enhlusta öruglega á Haltur leiðir blindan aftur og aftur.Kveðja frá Grimsby
Þura (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 09:19
Gaman að geta þess að hljómsveitin stendur algjörlega undir þeirri nafngift að vera "bílskúrsband" því piltarnir æfa í bílskúr sem staðsettur er inni í Firði á Ísafirði. Til þess að vernda þá fyrir æstum aðdáendum tel ég þó ekki rétt að gefa upp nákvæmari staðsetningu.
Jómmi (IP-tala skráð) 24.11.2008 kl. 09:53
Bíddu aðeins: Hvað þýðir "síðasta útkall á síðasta hlaðborð í húsi gleði og sorgar í eitt skipti fyrir öll."?
Guðrún (IP-tala skráð) 25.11.2008 kl. 00:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.