Um nótt

Sólarhringur Vertsins er eitthvað umsnúinn og úthverfur þessa dagana. Hroturnar í margnefndri heyrast um allt nágrennið fram undir hádegi er svifið er um draumalandið í djúpum þyrnirósarsvefni. Það gefur að auga leið að til þess að geta sofið svo lengi, þarf að vaka fram á rauða nóttina og það er oftast nær hægur vandi enda á títtnefnd afar gott með að vaka fram á miðjar nætur og sofa fram á hádegi og jafnvel lengur ef því er að skipta. Reyndar nær þetta ástand ekki nokkurri átt, það sér hver maður, svo stefnt er að allsherjar viðsnúningi á ástandinu í fyrramálið. Ástæðan er einfaldlega sú að hluti krakkahópsins er á leið til höfuðborgarinnar og ætlar Vertinn að fylgja sínu fólki á flugvöllinn og verður því að drattast fram úr rúminu í tíma.

Til  að mynda akkúrat í augnablikinu situr bloggritari alein í eldhúsinu við tölvuna sína og skrifar á veraldarvefinn umvafin næturhúmi og klukkan að ganga þrjú. Ný leið til að vekja á sér endalausa eftirtekt í tölvuheimum uppgötvaðist nýverið á andlitsbókinni svokölluðu eða facebook og sogast margnefnd inn í hana með undraverðum hætti. Vinir dúkka upp hér og þar og allstaðar og fjölmargir sem löngu voru gleymdir birtast brosmildir og vilja vera vinir í gegnum súrt og sætt. Alltaf er gott að eiga nóg af vinum til að halla sér að það eitt er víst og þeim er öllum tekið fagnandi hverjum og einum.

Til að gera eitthvað af viti annað en að skrifa eitthvað sem ekkert vit er í fór Vertinn að velta fyrir sér heimsóknum á síðuna frá því að mælingar á heimsóknartíðni hófust, eða í mars í fyrra. Flettingar eru 304690 þúsund sem tákna það að öll íslenska þjóðin hefur flett sig í gegnum þessa bloggsíðu á einu og hálfu ári en fletting telst það þegar einhver síða undir viðkomandi bloggi er sótt og skoðuð af einhverjum tilteknum notanda. (Í þessu samhengi eru myndir eða annað aukaefni inni í síðu ekki taldar með til síðna). Inn í þessari tölu er væntanlega átt við alla Íslendinga alveg frá því þeir fæðast og þangað til þeir fara yfir móðuna miklu eða alla leið frá vöggu til grafar, nema svo einkennilega vilji til að einhverjir lesi síðuna oftar en einu sinni. Það er auðvitað inn í myndinni og telja má líklegt að lestur þessara skrifa verði ávanabindandi fyrir lesandann og veiti nokkurs konar alsælu og vellíðunartilfinningu sem er eftirsóknarverð hverjum þeim sem hefur gaman af lífinu.

Væntanlega má gefa sér það að einhverjum þyki gott að lesa um eitthvað annað en gríðarlega spekingslegar vangaveltur um hverjum sé um að kenna hvernig komið er fyrir þessari litlu þjóð sem stendur svo berskjölduð fyrir veðri og vindum í Atlandshafinu og hvern eigi að grýta fyrir aðild sína að hruninu. Sumir vilja ugglaust hengja bakara fyrir smið og svo öfugt og reiði fólks er mjög skiljanleg enda alls ekki ástæðulaus. Stundum beinist reiðin að einum frekar en öðrum og stundum er eins og allt verði í stakasta lagi og stundum er eins og allt komi til með að fara í kalda kol.

Frumskilyrði er þó hér hjá okkur fyrir vestan að standa saman og styðja hvert annað. Versla í sinni heimabyggð eða reyna eftir fremsta megni að styðja við það sem er á svæðinu.....koma í Kjallarann og fá sér kolamola sem enn er á kreppuverðinu....kíkja í hádegisverð í Einarshús ( strax í dag), sem er enn á kreppuverðinu...panta sér borð á jólahlaðborði, sem er enn á kreppuverðinu...koma um miðjan daginn og fá sér heitt súkkulaði og kökusneið, sem er enn á kreppuverðinu...standa vörð um þá þjónustu sem við viljum hafa í byggðarlaginu...því engin veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur.

Opið er í Einarshúsi alla virka daga frá klukkan 10:00 til klukkan 16:00 og á föstudags-og laugardagskvöldum frá kl. 22:00 til kl. 03:00

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Innlitskvitt til tín tá eru tad 304691

Med kvedju frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 14.11.2008 kl. 09:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband