13.11.2008 | 02:12
Koss
Súðavík heilsaði Vertinum í Víkinni með kossi í kvöld enda ár og dagur síðan títtnefnd heimsótti hana í þeim erindagjörðum að fara á AA fund. Það var afmælisgjöfin frá títtnefndri til margnefndrar að fara á fund eftir allt of langt hlé og létta ögn á sér og ekki síst hlusta á aðra segja frá reynslu sinni. Það er svo ótrúlega gott að vita til þess, að maður er ekki einn á báti í lífsins ólgusjó og gott að treysta á þaulvana ræðara um borð sem róið geta með téðan Vert að landi ef báturinn lendir í ágjöf eða fær á sig brot. Það er nauðsynlegt að ná innri ró og fá hugann til að hætta að vinna á þvílíkum hraða að minnstu munar að hausinn detti af og skoppi yfir urð og grjót. Tólfta sporið var til umræðu en þar er fjallað mikilvægi þess að flytja öðrum fagnaðarerindi AA samtakanna og reynslusporanna og reyna að vera góð fyrirmynd.
Títtnefnd fær að heyra margar raunasögur við barinn og besta ráðið er að hlusta og vera til taks ef á þarf að halda. Tár sást á hvarmi um helgina er bundið var enda á þriggja mánaða edrú tíma eins gestanna. Vörnin brast fyrr um daginn og flóðgáttir alkóhólismans opnuðust fyrir allt sem rann. Þá sást Bakkus í öllu sínu veldi glottandi út í bæði, haldandi tangarhaldi með hrammi sínum um viðkomandi og gefa hvergi eftir. Vörnin brast kannski vegna þess að ekki var til fjármagn til að senda viðkomandi í áframhaldandi meðferð eftir dvölina á Vogi . Kannski hefði það verið lífsspursmál fyrir viðkomandi, kannski ekki, en brýnt er að sjá til þess að fólk sem komið er út á ystu nöf af völdum þessa ógnarsjúkdóms komist í viðeigandi meðferð. Hvergi má gefa eftir á þessum tímum óvissu og umbrota í íslensku þjóðlífi við að koma fólki til hjálpar til eðlilegs lífs sem á við alkóhólisma að glíma en ætla má að vandamál samfara áfengisdrykkju aukist í samræmi við bágt efnahagsástand þjóðarinnar.
Þessi færsla átti reyndar að vera á léttu nótunum fyrir svefninn en leiddist út hugrenninga um vanda drykkjusjúkra. Hughrif frá fundinum í kvöld ollu því trúlega að hugsunin er bundin við þessi málefni en hugurinn er líka bundinn við gestinn sem felldi tár yfir bágu ástand sínu og köldum kossi Bakkusar konungs.
Því bíður gamansöm bloggfærsla betri tíma...
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Takk fyrir þessa frábæru bloggfærslu.
kveðja Áslaug
, 13.11.2008 kl. 06:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.