Áskorun

ElfarVertinn í Víkinni mun nú veita nokkrum útvöldum einstaklingum þann heiður að mæta á einleikinn í Einarshúsi um þá Pétur og Einar. Það er ekki þar með sagt að allir megi ekki mæta þar fyrir utan enda eru allir boðnir velkomnir háir sem lágir í Einarshús eins og ætíð og allir verða að borga jafnmikið enda er öllum gert jafnhátt undir höfði. Þó mega þeir sem eru sérstaklega boðnir velkomnir vera afar upp með sér að fá að hljóta þá lotningu að sjá nafnið sitt hér neðar í færslunni og reikna má allt eins með að margir hverjir hreinlega kikni undan álaginu og treysti sér varla til að mæta. Hægt er þó að lofa því að enginn verður svikinn af þessum frábæra einleik sem settur var á fjalirnar í þessu húsi harma og hamingju og allir munu skemmta sér hið besta. Verkið verður flutt tvisvar í nóvembermánuði auk þess að vera leikið á jólahlaðborði fyrir jólin. Téðum Vert finnst endilega að helst enginn megi láta það happ sér úr hendi sleppa að sjá og upplifa sögu þessara manna sem settu hvað mestan svip á sögu Bolungarvíkur á uppgangstímum og telur afar brýnt að fólk njóti þess að mæta á eitt flottasta kaffileikhús landsins og þótt víðar væri leitað. Nú verðum við án efa að hætta að æða suður í tíma og ótíma og því síður til útlanda til að berja hina og þessa sýninguna augum, nú nýtum við okkur það sem er í túnfætinum í garðinum heima.

Varla þarf að nefna það að Sveinbjörn Ragnarsson var svo einstaklega heppinn á síðustu spilavist að vinna miða fyrir tvo á sýninguna og sjálfsagt þykir að hann bjóði henni Jensínu með sér eða gefi einhverjum miðann sem honum þykir vænt um svo hann nýtist til fulls. María Ólafs var einnig svo stálheppin að vinna miða fyrir tvo og reiknað er með því að hún bjóði einhverjum á einleikinn til að miðarnir geti nýst.

Þessir eru boðnir sérstaklega velkomnir eins og allir hinir sem verða sérstaklega boðnir velkomnir á næstu sýningar og eru ætíð velkomnir:

Sólberg og Lucie, Sölvi og Birna, Alda og Björn, Sólveig og Bjarni, Díana og Bjarki, Hagbarður og Ragnhildur, Helga og Gummi Ragg, Lalli og Fríða, Jón Sveinsson og Ingibjörg, Sigga Kára og Sveinn, Snorri Harðar og Dedda, Gummi Reynis og Anna, Sísí og Halldór, Anna Jör og Bjarni með Evlalíu...........kannski hafa einhverjir af þessum komið meðan títtnefnd var ekki á staðnum og beðist er velvirðingar á því.......Magga Lilja og Agnar, Kristný og Lúlli........þá er upplagt að láta hugann reika til Ísafjarðar og nefna í því sambandi... Ásthildi og Ella Skapta, Ólínu Þorvarðar og Sigga P, Hlyn og Ölmu, Gróu og Önund, Skúla og Auði, Guðfinnu og Halldór, Birnu og Lalla, Gylfa og Sóley, Möttu og Gumma Hjalta, Halla trúbador með sinni frú og svona má lengi telja áfram og trúlega heldur títtnefnd áfram að telja í fyrramálið. Ætli þetta sé þó ekki gott í bili.

Sýningin Pétur og Einar hefst í Einarshúsi á fimmtudaginn 6. nóvember kl. 20:00 og er einungis í 40 mínútur og aðgangseyrir er 1500 krónur. Allir geta haft gaman af þessari sýningu og er það ekkert atriði að þekkja söguna út í hörgul því sagna lætur engan ósnortinn enda magnþrunginn. Hún er uppfull af söng, glensi og gríni í bland við alvöru lífsins hjá fyrrum íbúum Einarshúss.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Manni kemur nú í hug ljóð Sigurðar Þórarinssonar (Raunarsaga úr sjávarþorpi), en svolítið uppásnúið hljóðar það svo:

Hún býður:

Kalla Jóns og Gústa læknisins og Nonna Sæmundarog Halla rakarans og Fúsa Sigurleifs og Palla á Goðanum

og Denna á Efstabæ - en ekki mér.

Sjá nánar á slóðinni: http://frontpage.simnet.is/jommi/_Textar/raunarsaga_ur_sjavarthorpi.htm 

Jómmi (IP-tala skráð) 4.11.2008 kl. 14:41

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Allir eru velkomnir og einnig þú......annars er enginn eins velkominn og þú og Stjáni á markaðshelgina næstu enda eru þið bókaðir þvers og kruss og geirdegldir við stóra sviðið eins og þú veist. Þú ert reyndar einn af þeim ljónheppnu sem Vertinn hefur boðið prívat og persónulega á Pétur og Einar eins og þú án efa glögglega mannst frá í sumar.

Ég þekki reyndar ekki til þessara karla sem þú nefnir í vísunni enda kannast ég ekki við neinar raunasögur úr sjávarþorpi, því í Víkinni slær hjartað í sínum eðlilega takti og allt er á full swing.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 4.11.2008 kl. 17:00

3 identicon

Auðvitað var ég búinn að sjá þetta, en gat ekki setið á mér að atast í þér þar sem ég sá að þú varst að bjóða tilgreindum aðilum, en þykist vita að það sé bara byrjunin.  Ég mæli eindregið með því við alla þá sem ekki hafa séð verkið að drífa sig og sjá einleikinn í þessu einstæða umhverfi.

Jómmi (IP-tala skráð) 5.11.2008 kl. 11:10

4 identicon

Æjæj var að sjá þetta boð fyrst núna,var reyndar að koma keyrandi að sunnan þetta kvöld en kannski ég komi næst.Takk samt 

Magga Lilja (IP-tala skráð) 8.11.2008 kl. 23:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband