Hugleiðing í vikulok

Vertinn er nú vöknuð eftir langa næturvakt en skriðið var upp í fletið þegar klukkan var langt gengin í fimm í morgun eftir stórskemmtilegt kvöld. Bardömurnar brugðu sér hinu megin við barborðið og dönsuðu villta dansa með gestunum enda var afar góðmennt í nótt og bara mjög skemmtilegt. Maður er nefnilega manns gaman og það er það sem skiptir öllu máli að mati títtnefndrar og betra er að hafa færri glaða gesti, en fleiri með fýlusvip yfir því hvað allt sé leiðinlegt og ömurlegt sem í boði er í Kjallaranum, enda er afar gott að horfa á eftir þeim gestum í glaum nágrannabyggðarlaganna. Neikvæð umræða er smitandi og einungis til þess fallin að eyðileggja og skemma fyrir því sem verið er að reyna að gera í bæjarfélaginu. Auðvitað er það vitamál að þeir sem rífa hvað mest niður það góða sem gert er, byggja hvað minnst upp að sama skapi og leggja því lítið til samfélagsins. Það er þó þeirra mál og ekki til þess fallið að láta setja sig út af laginu á nokkurn hátt enda engin ástæða til.

Reyndar verður þó eftir fremsta megni að taka vel á móti öllum sem koma í Einarshús og gestir hússins eru að leita eftir vinalegu andrúmlofti og kósýheitum. Það er því frumskilyrði að brosa og vera glaður þegar kúnninn kemur og slá á létta strengi eins og hægt er. Það er eðli Vertsins í Víkinni og hennar skylduliðs að gantast og grínast og umfram allt hlægja eins oft og þurfa þykir og kannski oftar en góðu hófi gegnir, en oft hefur verið þörf á því, en nú er nauðsyn. Fólk sem vinnur í þjónustustofnunum ber nefnilega gríðarlega ábyrgð og það er hreinlega ekki boðlegt að fólk sem vinnur á bar, í banka eða búð taki á móti viðskiptavinum sínum með hundshaus eða svartsýnistali vegna efnahagsástandsins sem gerir það jafnvel að verkum að fólk er miður sín eftir heimsóknina á viðkomandi stofnum eða stað. 

Vertinn hefur því af þessu gefna tilefni hug á að flytja til landsins brospillur og gleðipillur í bland við smá jákvæðisduft og hlátursafa til að selja á götuhornum hirst og her. Aukaverkanir geta verið hláturkrampi og stífkrampi en búið er að koma í veg fyrir ristilkrampa af völdum  gleðipillanna enda eru komnar pillur á markað sem halda infrastrúktúr garnanna í jafnvægi. Minnistöflur Vertsins standa þó alltaf fyrir sínu, þá sér í lagi þegar títtnefnd man eftir að taka þær, en ein lýsispilla fylgir skammtinum sem gefur fríkslegt útlit og varpar ljóma á yfirbragðið. Það setur þó strik í reikninginn að pilluskammturinn skal greiddur í japönskum jenum í bland við svissneska franka og evrur en vegna þessa ójafnvægis sem ríkir á milli landanna í peningamálum hefur Vertinn boðið íslenskar sviðalappir í býttum fyrir pillurnar en sökum þess hve vöruskiptajöfnuðinn er óhagstæður verður víst að geyma sendinguna enn um sinn. Margnefnd hefur því samið við Óla Lokbrá um að setja gleðiefni saman við duftið sem hann stráir yfir bæinn í kvöld svo vænta má þess að bæjarbúar brosi út í eitt alla næstu viku.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband