31.10.2008 | 02:07
Krepputími
Vertinn í Víkinni vildi helst af öllu vefja sig og sína inn í bómull á þessum síðustu og verstu tímum. Það er nokkuð erfitt að sneiða framhjá neikvæðum fréttum af því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu og láta það ekki hafa áhrif á hið daglega líf en kúnstin er þó að líta fram á veginn og láta ekkert trufla sig í því að ná markmiðum lífsins. Þeir sem eru þreyttir á umfjöllun hvers dags fyrir sig geta auðvita lesið www.vikari.is en þar er lagt ofurkapp á að halda því jákvæða á lofti og sveigt er framhjá hverskyns fári eins og frekast er unnt á þessum sívaxandi vinsæla netmiðli. Einnig er tilvalið að koma við í Einarshúsi ef leiði fer að hellast yfir fólk því ætíð er vel tekið á móti fólki þar enda starfa þar brosmildustu skvísur bæjarins sem hafa ráð undir rifi hverju og hugga og hughreysta ef á þarf að halda. Bardömur eru nefnilega sálfræðingar, geðlæknar, huglæknar, hjónabandsráðgjafar allt í senn og meira til ef því er að skipta. Það væri auðvitað ráð að fá leyfi til að gifta í fljótheitum til að koma í veg fyrir lifnað í synd og skömm og lesa síðan í sundur þegar allt er búið, en trúlega myndi himnafaðirinn ekki sætta sig við það og biskupinn ekki heldur. Því er þetta trúlega ágætt eins og þetta er.
Vertinn mun þó hvergi hvika frá þeirri ákvörðun sinni að halda haus og sveiga hvergi frá þeirri ákvörðun sinni að halda ótrauð áfram. Það er auðvitað háð því að fólk mæti í hús sorgar og gleði eins oft og það mögulega getur og taki þátt í lífinu þar eins oft og þurfa þykir. Kolamolinn úr kolageymslunni hefur þó ekki hækkað í langan tíma og mun halda verðgildi sínu eitthvað áfram. Gjaldeyrisvaraforði títtnefndrar er svosem enginn og stighækkandi stýrivextir og vaxtavextir ofan á verðbólgu, óðabólgu og magabólgu gera það varla kleyft til lengdar að halda kolamolanum á því verði sem hann er í dag. Því er það tilvalið að nota tækifærið og kaupa mjöðinn meðan hann endist og er á spottprís.
Kjallarakeppnin er í kvöld, föstudag, og spyr Pálína Jóhannsdóttir fólk spjörunum úr og heyrst hefur að einhver stemning sé að myndast í kringum keppnina og fjölmenni stefni í Kjallarann. Verðlaunin eru í fljótandi formi og koma frá Vífilfelli og það er því til mikils að vinna og nauðsynlegt að mæta og taka þátt í þrælskemmtilegri spurningakeppni. Vertinn telur nauðsynlegt á þessum tímum að hittast og koma saman í góðum hópi því það gerir gott að fara út og hlægja með öðrum og gera gys. Tilboð verður á krepputíma frá kl. 22:30 til 23:30 en keppnin hefst upp úr hálf ellefu.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Tad hefur verid fjör á kjallarakeppninni í gær.
Kvedja til tín frá Jyderup
Gudrún Hauksdótttir, 1.11.2008 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.