Vakin og sofin

Trúlega telja einhverjir tímabært að vakna af Þyrnirósarsvefninum og segja fréttir af lífi og tilveru Vertsins í Víkinni. Flestir sem til þekkja vita það að títtnefnd hefur ekki sofið á verðinum frekar en fyrri daginn enda hefur margt og mikið á dagana drifið síðan fréttir voru bornar á borð fyrir lesendur bloggsins síðast. Ekkert sérstakt stendur þó uppúr frekar en annað enda rennur lífið ljúft hjá og átakalaust. Dagurinn samanstendur að jafnaði af kæruleysislegum rólegheitum. Myndavélin er brúkuð annað slagið enda eru myndefni fjölbreytileg og framúrskarandi. Ekki þarf að fara lengra en út fyrir hússins dyr til að augað nemi eitthvað sem gaman er að festa á filmu og nauðsynlegt þykir að smella af í tíma og ótíma. Fréttaefni eru þefuð uppi þegar þannig stendur á og viðtöl við eldri borgara í bænum munu taka stóran sess hjá fréttaritaranum í nánustu framtíð til birtingar á vefnum þegar hentar.

Vertinn í Víkinni hefur einnig staðið vaktina í Einarshúsi þegar þannig stendur á og stillt til friðar á ófriðartímum í Kjallaranum. Reyndar þurfti títtnefnd aðstoð við að hemja styrjöldina sem geisaði milli manna en það hafðist allt með smá þolinmæði og handayfirlagningu. Gestir fengu kostulega kveðju í lokin og breyttu til hins betra eftir predikun og voru til friðs það sem eftir lifði kvöldsins. Það er afar sjaldgæft að talað sé með hnefum í þessu húsi sorgar og gleði en ef eitthvað ójafnvægi raskar ró hússins leysist það allt með undraverðum hætti og andardrátturinn verður eðlilegur á ný. Vertinum var boðið í eftirpartý síðar um nóttina og svo heppilega vildi til að það var á heimili títtnefndrar. Vakað var því fram á rauðan morgunn og dagurinn eftir varð alveg handónýtur fyrir vikið. Sunnudagurinn rann þó upp og flugvélin gat lent með húsbóndann og hundinn. Allir er því á einum og sama staðnum og geta því haldist í hendur sitt á kvað.

Morgundagurinn bíður handan hornsins með sínar vonir og væntingar. Vertinn þarf að hitta gamlan sjómann sem gæti hugsanlega gefið gamalt net sem brúka mætti sem gardínur í Kjallarann. Búið er að finna ankerinu stað í koníaksstofunni og þar á það eftir að sóma sér vel í framtíðinni og kjölfestan er því fundinn svo ekki þýðir að rugga bátnum lengur. Morgundagurinn bíður líka upp á viðtal við gamlan sjómann sem þykist ekki hafa frá neinu að segja en títtnefnd veit betur og mun skrásetja sögu hans steinplötu ef ekkert annað er við hendina.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Innlitskvitt í Víkina.

kvedja frá Jyderup

Gudrún Hauksdótttir, 28.10.2008 kl. 06:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband