Ankerið

Einarshús í snjóAnkeri lenti í veiðarfærum skips frá Akranesi er verið var að draga í dag langt út á ballarhafi. Ankerið var tekið um borð, því þeirri hugsun flaug  í gegnum huga skippersins á dallinum, að Vertinn í Víkinni gæti haft not fyrir ankerið í Kjallaranum eða við Einarshúsið. Þessi kapteinn er ekki sá fyrsti sem hefur hugann við téðan Vert þegar gamlir hlutir dúkka upp hér og þar enda hafa fjölmargir hugsað hlýlega til títtnefndrar við slíkar aðstæður því vita flestir sem til þekkja á annað borð vita að margnefnd er hrifin af allskyns dóti og drasli með sögu. Ankerið á vissulega sína sögu enda búið að liggja á hafsbotni í áratugi og ber það þess glögglega merki. Það hefur trúlega verið vitni að einu og öðru í undirdjúpunum og á án efa eftir að segja sögur við ylinn frá kamínunni við tækifæri. Fjölmargir sjaldséðir munir leynast í Einarshúsi og einhverjir þeirra eru varla til á söfnum er fullyrt af áhugamönnum um gamla hluti og útlendir gestir bókstaflega taka andann á lofti er þeim er sýndur Kjallarinn.  

Útlendur ferðamaður hefur komið í tvígang í annáluðu sjávarréttasúpuna með stuttu millibili og hefur varla bragðað annan eins unaðsrétt. Hann gat ekki leynt ánægju sinni með þetta hús sem biði í þokkabót upp á þvílíka unaðssúpu úr sjávafangi sem allt er veitt hér við ströndina. Hann á án efa eftir að koma upplýsingum um húsið áleiðis til landa sinna við fyrsta tækifæri og ætla má að það skili sér næsta sumar. Vertinn telur fullvíst að ástandið í heiminum geti skapað fjölgun ferðamanna til landsins sem getur komið sér vel hér vestra og skilað einhverjum auknum tekjum í þjóðarbúið.

Lagt er upp með að einhver gisting verði í boði næsta sumar í Einarshúsi svo hæglega verður auðvelt að koma í dýrindis mat og rölta svo niður í Kjallarann um kvöldið og koma við í kolageymslunni. Þaðan munu svo fegurstu bardömur bæjarins fylgja gestum til hvílu og fara með trúarjátninguna fyrir svefninn enda er trúin á eilíft líf, upprisu holdsins og getnað í heilögum anda umhugsunarefni. Ekkert ósiðsamlegt mun þó fara fram í húsi sorgar og gleði nú frekar en fyrri daginn en það er oft hlutverk margnefndrar og hennar skilduliðs að vera ankeri fyrir þá sem sigla stefnulaust upp á sker og sjá ekki mun á réttu og röngu í darraðadansi við Bakkus konung.

Vertinn hefur ekki dansað við Bakkus í bráðum tvö ár. Þessi tvö ár hafa liðið eins og í draumi og ótrúlegt að hugsa til þess að hafa náð verið edrú allan þennan tíma og varla fundið fyrir neinu. Dansinn hefur þó verið stiginn síðan, bara með öðrum hætti og við annan takt og ballið heldur látlaust áfram. Það er einstaklega gott að vera allsgáð í partýinu þó stundum sé erfitt að sjá hve illa áfengið getur haft áhrif á sumt fólk og þá sér maður hvað það er gott að vera laus undan álögunum. Tímatal Vertsins er því ekki lengur miðað við fæðingu frelsarans heldur 11.11.06, því þá hætti títtnefnd að drekka því þá festist ankerið sem rétti skútuna af. Það þurfti auðvitað eitt og annað til eins og gengur en þá var stefnan tekin í rétta átt í lífinu og þá hófst nýtt upphaf í lífi Vertsins í Víkinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Mikid er nú gott ad fólk hugsar til náungans.Og komi med punt fyrir Vertinn.Til hamingju med edrumennskuna.

Gott ad hafa svona ankeri sem getur rétt  sálina af.

Gudrún Hauksdótttir, 22.10.2008 kl. 08:46

2 Smámynd: Brynja skordal

takk fyrir bloggvináttu Ragna mín mikið er þetta orðið glæsilegt hjá ykkur gaman að skoða allar myndirnar

Brynja skordal, 22.10.2008 kl. 23:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband