Sumir dagar

Það er alveg merkilegt hvað sumir dagar geta verið annasamir og hreint ekki einleikið hve mikið getur verið að gera á einum og sama deginum. Ótrúlega margir heimsóttu Einarshúsið og nutu þess sem þar var í boði. Það keyrði svo um þverbak er hjólreiðapar frá Ameríku lagði knöpum sínum upp við húsið og fengu sér mat og drykk um miðjan daginn en þau eru í vikufríi á Íslandi og mættu að sjálfsögðu galvösk til að hitta Vertinn í Víkinni og voru svo sannarlega ekki svikin af því frekar en aðrir.

Títtnefnd stendur vaktina þessa dagana vegna veikinda starfsfólks og fær því að standa yfir pottunum sem er í sjálfu sér ágætt svona annað slagið. Það kemur þó pínulítið niður á öðrum verkum sem bíða þolinmóð handan hornsins en þeirra tími mun koma um leið og um hægist. Hvert annað skondið atvik leiddi af öðru og leið dagurinn í eilífum hlátrasköllum. Hláturtaugar Vertsins virðast vera í mjög góðu standi þessa stundina og virka fullkomlega eins oft og þurfa þykir. Sagt er að hlátur lengi lífið og vænta má að títtnefnd verði háöldruð með þessu áframhaldi og hrökkvi ekki upp af fyrr en hún fer endanlega yfir móðuna miklu, kveðji þennan heim og haldi á vit forfeðranna, steindauð......dáin og grafin....um aldur og eilífð.

Langt er þó í að það gerist enda er títtnefnd rétt hálfnuð á lífsins leið og á svo fjölmargt eftir að gera. Á morgun bíða mjög spennandi verkefni sem beðið hefur verið eftir með óþreyju. Þar fær fréttaritarinn á www.vikari.is að stíga einu skrefi lengra en gengur og gerist vegna þess eins að títtnefnd gefur sig út fyrir að flyta jákvæðar fréttir úr byggðarlaginu á þennan tiltekna netmiðil og varpa þeim til heimsbyggðarinnar um veraldarvefinn. Við skulum vona að það takist vel til og glöggir lesendur fái að njóta þess sem fyrir augu fréttaritarans ber á morgun á ljósmyndasafni www.vikari.is innan tíðar.

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Gudrún Hauksdótttir

Hlátur lengir lífid er sagt en ad auki gefur hann  mikkla velnlídan...

Knús

Gudrún Hauksdótttir, 16.10.2008 kl. 08:47

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband