3.9.2008 | 00:15
Ævintýri
Dagurinn í dag rann upp bjartur og fagur og beið þess að Vertinn stigi á stokk í öllu sínu veldi. Ævintýrin biðu handan hornsins og kúrðu í hálsakoti haustsins. Bankað var á dyrnar á Einarshúsi um hádegisbilið Vertinum í Víkinni að óvörum enda var húsið galopið og öllum frjáls innganga. Úti fyrir stóðu myndatökumenn með stórar myndavélar til að festa margnefnda á filmu er hún kæmi til dyra. Sjálfstætt fólk stóð glaðbeitt á tröppunum og biðu þess að gáttin á Einarshúsi opnaðist og títtnefnd birtist í öllu sínu veldi.
Það var engin aðdragandi, engin viðvörun, enginn tími til að sletta á sig kyssitaui og ekkert svigrúm til að spegla sig eða flikka upp á sig með einum eða öðrum hætti. Tíminn stóð kyrr eitt augnablik og andardráttur dagsins var varla merkjanlegur. Það vildi þó Vertinum til happs að flökkulæknirinn var með í för enda var hann aðalstjarnan í þessari uppákomu allri saman og er hann rauk með bros á vör inn í hús gleði og sorgar mátti vita að allt væri í stakasta lagi. Í framhaldinu færðist ró yfir margnefnda og doktorinn dró augað í pung og tíminn hélt áfram að tifa.
Míkrófónum og upptökutækjum var slengt á Vertinn og spurt var spjörunum úr á meðan maturinn var eldaður og uppákoman var líkt og margnefnd væri stödd í miðju ævintýri. Það skal ósagt látið hvort nokkuð af viti hafi komið frá téðum Vert í þessu viðtali og ekkert er vitað hvort það komi til með að birtast yfir höfuð en glöggt má þó sjá hve lífið hjá margnefndri virðist eintómur dans á rósum við lokkandi ljúfan vals.
Ef viðtalið birtist í fyllingu tímans er það meiriháttar auglýsing fyrir Einarshús og mun vekja álíka vellíðan hjá téðum Vert og pilluglas sneisafullt af gleðipillum skrifað upp á recept af Dr. Lýð.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
hæ hæ,,,, ég bíð spenntur......... mun þetta þá koma á stöð 2 eða ruv ?? eða eitthvað annað t.d. Discovery ??
kv.
Ástarpungurinn Höskuldur
Höski lögga (IP-tala skráð) 4.9.2008 kl. 10:42
Hæ Höski "loverboy"
Satt best að segja hef ég ekki hugmynd hvar og hvenær hann verður sýndur en tel líklegt að alheimsútsending verði á svæðinu frá Dalatanga til Djúpavogs. Heyrði því fleygt að hann verði einnig selfluttur með sæstreng til Blönduóss svo þú ættir að geta fylgst með þegar þar að kemur.
ES:
Stefnt er að yfirreið um Norðulandið í Víðidalstungurétt í fyrstu helginni í október. Vinsamleg tilmæli eru því lögð fram til lögreglunnar að hún verði ekki að radarmæla á svæðinu rétt á meðan
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 7.9.2008 kl. 12:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.