10.8.2008 | 10:36
Vertigo
"Góðkynja stöðusvimi" eða "benign paroxysmal positional vertigo" kallast fyrirbærið sem angrar jafnvægið hjá Vertinum um þessar mundir. Snarsvimi gerir vart við sig þá og þegar og ruglar það heiladinglinum og gerir viðkomandi ringlaða um stund. Allskyns æfingar eru nauðsynlegar til að koma jafnvægi á heilann því núllstilla þarf heilataugina til að allt fúnkeri eðlilega og myndarlegi læknirinn hefur verið heimsóttur í tíma og ótíma þar sem hann hefur farið yfir æfingarnar með margnefndri. Ekki lét téður Vert það slá sig útaf laginu því vikufríið beið handan hornsins og tilhlýðilegt taldist að halda sig við áður ákveðið plan enda á jafnvægisleysið að brá af á nokkrum dögum.
Haldið var því til höfuðborgarinnar með viðkomu Skötufirði þar sem myndin var tekin í steinhúsi en þaðan var haldið í Reykjanes og þar var ljúft að vera eins og ætíð. Frekar heitt var þó í herberginu eins og svo oft áður því stillilogn var úti og andvarinn gat því ekki leikið um herbergið. Sundlaugin í Reykjanes stóð þó fyrir sínu eins og alltaf og gott að díva tánni í heitt vatnið fyrir svefninn. Kollafjarðarheiði beið svo bljúg og góð í Ísafirðinum í gær og það var sérstaklega gaman að keyra hana en það er í fyrsta sinni sem Vertinn fær þeirrar ánægju aðnjótandi að sækja þessa fornu heiði heim.
Bjart var yfir Búðardal og glöggt mátti sjá hve þetta litla bændasamfélag var komið sterklega á kortið. Hlýtur að mega þakka það nýjum sveitastjóra þorpsins sem fékk þann heiður að fá að komast á kortið sjálfur með aðstoð Bolungarvíkur. Frá langömmu heillinni í Búðardal var haldið í humátt til Rutar frænku minnar í Gröf á Hvalfjarðarströnd en hún er dóttir Gríms á Ósi og eru hún og mamma systradætur. Á myndinni er hún með bónda sínum, Jóni. Þaðan var brunað í bæinn og rétt í þann mund er Gleðigöngunni var að ljúka í hjarta höfuðborgarinnar ókum við glaðbeitt inn í borgina er löðrandi leðurilmur sveif yfir vötnum.
Dagurinn í Reykjavík í dag bíður svo upp á bolvíska bongóblíðu. Sólin mun því leika við margnefnda er hún færir sig á milli verslana í æðislegri leit að varningi sem bráðvantar. Ætlunin er að kaupa flísar og flikka upp á eitt og annað á heimilinu og því er nauðsynlegt að kaupa inn á stórútsölum borgarinnar sem nú standa sem hæst.
Það verður þó að segjast alveg eins og er að gott er að komast í burtu frá Bolungarvíkinni eins og hún er nú indæl alla jafna enda er það nauðsynlegt að taka sér frí endrum og eins. Bolungarvíkin mun trúlega bjóða upp á blóðrautt sólarlag á meðan viðkomandi er fjarverandi. Vonandi verður þó enginn baðaður upp úr blóði hennar í vikunni sem framundan er. "Elskið þá sem eru yður þóknanlegir og leggið fæð á hina" er varla eitt af boðorðum vikunnar enda ekki boðorð yfirleitt, enda er slíkt ekki boðlegt í litlum samfélögum og ekki til þess fallið að auka hróður út á við.
Vitnað er nú í "Víkina mína" sem Vertinn samdi fyrir þorrablótið en einhver bolvískur rembingur helltist yfir óforvendis:
Víkin mín fríða í fjallanna sölum
Víkin svo fögur við ólgandi haf
Víkin sem skartar svo fallegum dölum
Víkin sem drottinn af góðmennsku gaf
Víkin sem vonir í brjóstunum vekur
Víkin mun vandlega hlúa mér að
Víkin sem huga minn alfarið tekur
Víkin í hjarta mér ætíð á stað
Vertinn var ekkert smá upp með sér að þetta erindi skildi verða notað í minningargrein um mann sem jarðaður var nýverið og gladdi það margnefnda mikið.
Að endingu er birt mynd af ástföngnum pörum sem tekin var á Ísafirði fyrir skömmu. Þar blómstraði ástin og kærleikurinn. Þessi pör eru nú stödd norður í landi og þar mun ástin einnig blómstra og kærleikurinn og þá er tilgangi lífsins náð.
Bið að heilsa í bili
Verti-go
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.6.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 635843
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.