La det swinge

Sungið var um Sókrates á brjáluðu balli í Edinborg í nótt er Eurobandið skemmti dansgestum. Eitt lag enn hljómaði og Fly on the wings of love fékk Vertinn til að dilla sér sem aldrei fyrr. Take me to your heaven leiddi viðstadda upp í himinhæðir og fjörið var algjört. Öll gömlu góðu lögin fengu viðstadda í taumlaust tjútt og trall og við stelpurnar skemmtum okkur hið besta. Svona eiga böll að vera.

Ekkert sterkara en fanta hlaut þeirrar ánægju að fá að væta kverkarnar hjá Vertinum í Víkinni og það dugði til að halda dampi út nóttina. Eins og gefur að skilja þá fylgir enginn aukaorðaforði hverju fantaglasi enda þarf téður Vert ekki á aukaorðum að halda svo það kemur ekki að sök. Með tímanum verður einnig hægur vandi að sleppa af sér beislinu án aðstoðar Bakkusar konungs og augnablikið nýtist til fullnustu fyrir vikið. Gaman er þó að fylgjast með hegðun mannskepnunnar þegar líða tekur á kvöldið þegar korteríþrjúgæjarnir eru flestir búnir að missa glansinn og fara að stíga í vænginn við stelpurnar í restina. Þetta hegðunarmynstur er þó vel þekkt hjá dýrategundinni og lítil framþróun hefur verið á þessu atferli tegundarinnar í áratugi og ekkert kemur á óvart í þessum efnum.

Segjast verður þó alveg eins og er að Vertinn í Víkinni telur sig afar lánsama að hafa séð að sér í tíma og náð að losa sig undan hrammi Bakkusar. Það að geta haft stjórnina sjálf og ráða förinni að mestu leiti er algjört frelsi. Alkinn verður reyndar aldrei alveg frjáls því stríðið heldur áfram og átökin hið innra eru stundum strembin. Innri órói getur stundum verið meiri en góðu hófi gegnir en þá er heilinn að undirbúa jarðveginn til að ná sér í meira gleðiefni sem slær á alla innri ókyrrð um stund. Þá sest Vertinn gjarnan við tölvuna og bloggar og reynir að koma jákvæðum hugsunum á blað til að létta á spennu. Tuð og nöldur slæðist þó stundum með en birtist sem betur fer ekki á veraldarvefnum nema í algjörum undantekninga tilfellum enda er öllu neikvæðu " delítað" jafnóðum. Ruslafata hugans er þó misfull eftir dögum og hugarástandi hverju sinni en oftast ríkir nokkuð jafnvægi og heilalínuritið er nokkuð svipbrigðalaust.

Öllum neikvæðum minningum og hugsunum er safnað í sarp og hnoðað saman í poka sem hent er út á hafsauga. Stundum dagar pokinn með þessu jukki upp að ströndinni aftur og þá verður að leggja leiðina niður á sand til að nálgast hann og henda draslinu aftur eins langt og augað eygir út á haf. Þetta kallast þráhyggja og er algengt hjá aflóga fyrrum fyllibyttum eins og viðkomandi. Ekki það að Vertinn í Víkinni var ekki sú alversta í drykkju og djúsi en hver finnur sinn botn og það er mismunandi hvar hann leynist hjá hverjum fyrir sig.

Það er alltaf jafn erfitt að lenda á botninum hvar svo sem hann er og erfitt að viðurkenna vanmátt sinn. Taka þurfti til í skúmaskotum og "delíta" ýmsu og ýmsum sem höfðu slæm áhrif á lífið og tilveruna og juku á vanlíðan viðkomandi. Engin eftirsjá í slíku enda hafa umskiptin verið til góða frá upphafi edrútímans. Sérdeilis ófáir hafa laðast að téðum Vert frá upphafi og vinir í raun dúkkað upp allt í kring. 

Set með mynd sem tekin var í morgun á kambinum kl. 04:30 þegar komið var heim af ballinu góða og krakkarnir sátu í garðinum og voru að grilla pinnamat. Myndin sýnir sólarupprásina í allri sinni dýrð, líka þeirri sólarupprás sem hófst fyrir tæpum tveimur árum í lífi Vertsins í Víkinni er ný stefna var tekin og skipt var um gír. Myndin sýnir kólguský í fjarska en það er einmitt kúnstin í lífi alkans að halda þeim í hæfilegri fjarlægð.

Sólarupprás

 

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæhæ. Þetta eru góðar myndir hjá þér. Mikið svakalega var ég hissa að sjá hvernig er verið að eyðileggja traðarhyrnuna og myndirnar hjá þér sýndu "vel" hvað er í gangi þarna. Ég mæti bráðum vestur og hlekkja mig við eina ýtuna ;) KV úr KEf. Einar Ö

Einar Örn (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 21:31

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Sárið í Traðarhyrnu grær eins og önnur sár. Mættu frekar ferskur í Kjallarann næst þegar þú kemur vestur og taktu gott gigg.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 21.7.2008 kl. 13:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.6.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 635843

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband