Þar sem hjartað slær

Vertinn í Vikinni dvelur flestum stundum í  húsinu þar sem hjartað slær og blóðið svo ólgandi um æðar rennur. Yfirleitt yfirdrifið nóg að gera enda ferðamaðurinn farinn að líta við í auknum mæli. Þjóðverjar eru í meirihluta enn sem komið er og oftar en ekki væri gaman að vera fluga á vegg er téður Vert reynir að koma sögunni frá sér á framandi tungumáli. Ef viðmælendur gapa af undrun og ákalla guð sinn og skapara er talið að sagan hafi skilað sér þokkalega og allir virðast glaðir.

Leikarinn að hita upp

Reyndar má segja að viðkomandi Vert sé orðinn nokkuð blest á máli eftir miklar samningaviðræður við meðlimi hljómsveitarinnar Ný danskrar sem væntanleg er til Bolungarvíkur um markaðshelgi. Ein og ein dönskusletta gæti því slæðst með í textann þessvegna. Ef ég hafði það ekki fyrir helbera lygi mætti halda að innfæddur Dani væri að tala reiprennandi Íslensku með vestfirskum hreim er Vertinn hefur upp rausn sína. Kapparnir munu leika á dansleik í íþróttahúsinu og þeir ætla einnig leika nokkur lög á hátíðarsvæðinu fyrr um daginn og væntanlega þyggja einhverjar veitingar í húsi harma og hamingju, Einarshúsi.

IMG_3738

Markaðsdagur ber upp á 5. júli og menn eru hvattir til að heimsækja Bolungarvík og hafa gaman. Margt verður hægt að gera sér til skemmtunar þessa helgi og án efa verður líf og fjör í bænum. Jómmi og Stjáni munu mæta galvaskir í Kjallarann á föstudagskvöldið 4. júlí líkt og undanfarin ár og hita upp fyrir herlegheitin og einleikurinn Pétur og Einar mun einnig verða í boði á laugardaginn 5. júlí og byrjar kaffileikhúsið kl. 17:00. Túpílakarnir halda svo tónleika í Kjallaranum kl. 21:00 á laugardagskvöldið og hita upp fyrir Ný dönsk, auk þess sem í boði verður þriggja rétta kvöldverður í Einarshúsi á laugardagskvöldið.

Helga Svana í kaffileikhúsi

Ansi er ég hrædd um að lífið væri mikið fábrotnara í Bolungarvík ef Einarshúsið iðaði ekki af lífi. Sumir hafa þá skoðun að Bolungarvík blæði, en innan veggja Einarshúss slær hjartað í taktföstum slögum hverja stund og ólgandi blóðið rennur svo heilbrigt um panelklæddar æðar hússins sem geymir svo mikla sögu og lífsklukkan gengur í takt við taumlausa gleði gestanna. 

Hraunberg að teygja þvottinn þvottinn

Sagan heldur áfram að óma og einleikurinn Pétur og Einar heldur áfram að slá í gegn. Sýning var á fimmtudagskvöldið síðasta og hún heppnaðist fullkomlega. Leikarinn fór á kostum og allt gekk eins og í sögu. Mikil ánægja er með þetta framtak okkar og nú setjum við allt á fullt við frekari vinnu við að koma einleiknum og sögunni frekar á framfæri. Vonir standa til að hægt verði að sýna einleikinn einu sinni í viku í allt sumar en þá þarf að trygga einhverja aðsókn á hverja sýningu fyrir sig og mun vinna hefjast við að selja sýninguna hópum, félagasamtökum, vinnustöðum og bara hverjum þeim sem áhuga hafa á sögu þeirra manna sem stóðu að uppbyggingu staðarins. Einnig tel ég upplagt fyrir forsvarsmenn ættarmóta að hafa samband og panta eina sýningu og jafnvel sjávarréttasúpu eða annan unaðslegan rétt í leiðinni.

Söngur sjómannsins

Ljóst er nú orðið að stór samtök á landinu hafa ákveðið að veita frekari styrk til þess að gera meira úr sögu hússins og það er vel. Formlega afhending verður á næstu helgi og þá verður þetta gert opinbert og þá verður enn einn gleðidagurinn hjá Vertinum í Víkinni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Skráðu mig og Jóa þann 5.júli.  Ætlaði að fara síðast en þurfti að fara að telja dósir fyrir væntalega Serbíufara og hvað gerir ungamamma ekki fyrir ungana sína

Til hamingju með styrkinn!

,,ólgandi blóðið rennur svo heilbrigt um panelklæddar æðar hússins sem geymir svo mikla sögu og lífsklukkan gengur í takt við taumlausa gleði gestanna"

Katrín, 22.6.2008 kl. 11:07

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Ég bóka þig og Jóa. Tel þó betra til öryggis að mæta nokkuð snemma því einleikarar Act alone munu streyma á sýninguna og taka sinn skerf af salnum mínum fína.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 22.6.2008 kl. 23:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband