Bull

Gerfitungl hefur verið endurræst út í geimi til að endurkasta enn einu viðtalinu við Vertinn til alheimsins. Sá yfirþyrmandi áhugi gömlu góðu gufunnar á títtnefndum Vert í Víkinni er algjör og nær út yfir allt. Sagt er að í þetta skiptið verði reynt að varpa hljóðbylgjum út yfir gröf og dauða svo hinir framliðnu nái útsendingunni enda munu frumkvöðlarnir Pétur og Einar bíða spenntir eftir að heyra hvað er að gerast í húsinu þeirra sem geymir bæði sorg og gleði.   

Stórum útvarpssendi mun því verða komið fyrir í gamla kirkjugarðinum upp á hólnum sem varpar stuttbylgjum til radarstöðvarinnar uppi á Bolafjalli sem síðan dreyfir langbylgjum til gerfitungls á suðaustur horninu sem ber síðan hljóðbylgjurnar til himna. Mun björgunarsveitin “ Erki-Englarnir”frá syðra Vatnshorni vakta svæðið enda má búast við því að loftið verði ansi rafmagnað og reikna má með því að ekki nokkrum lifandi manni verði vært á hólnum. Ekki er þó talið tryggt að þessi tilraun heppnist í fyrstu adrennu en fullyrt er að verkfræðingar á borgarkrifstofunni ætli sér að ná því takmarki að láta hljómþýða rödd Vertsins óma um himnasali enda eru þar innanborðs þaulvanir tæknimenn sem  senda hreppsnefndarfundi til hlustenda gegnum tölvu af kontórnum og kunna því vel til verka. Himnaríki mun því auðveldlega verða tengt við veraldarvefinn í stutta stund og tilhlýðilegt verður því að hlýða á svæðisútvarpið á tilskyldum tíma eða rétt á meðan viðtalinu verður varpað um himinhvolfin.  

Heyrst hefur eftir mjög áreiðanlegum lygasögum að Lykla Pétur hafi verið sendur á tölvunámskeið í fræðslumiðstöðina dulbúinn sem fávís dyravörður og frekar erfiðlega hafi gengið að kenna honum undirstöðuatriðin í tölvuvinnslu þess vegna. Eftir langa yfirlegu tókst þó loks að kenna viðkomandi að sjá um þessa alheimsútsendingu í gegnum tölvuna sem styrkt verður af  hewlett pakkart og vódafóne en einnig ætlar verslunar Veigar að bjóða ókeypis pyslur og kók við innganginn og Efemía mun vera með tilboð á biblíum í bókabúðinni. Jóhannes skírari ætlar síðan að taka skírn eftir þáttinn og mun hún fara fram í húsi andanna við Kirkjustræti. Joð almáttugur og Ká guð verða skírnarvottar ef á þarf að halda 

Mótorhjólagengi miðaldra karlmanna á Holtunum, Bökkunum og á Mölunum mun sjá um fólksflutninga milli staða en ekki er hægt að vita með vissu hvort þeir eru að elta gráa fiðringinn eða hvor sá grái engill sé að elta þá, svo ekki er hægt að segja fyrir víst hvort hraðatakmarkanir innanbæjar verðir virtar af þeim sökum. Menn eru þó beðnir að vera með allan öryggisbúnað á hjólunum ef í nauðirnar rekur fyrirvaralaust og setja öryggið á oddinn í hvívetna.  

Ekki skal hér upplýst hvenær viðtalinu verður útvarpað og er talið afar ólíklegt að nokkur nenni að hlusta því það getur víst verið of mikið af hinu góða svo ekki sé meira sagt. Miklar vonir eru þó bundnar við það að það sem flæði frá téðum Vert í þessu útvarpsviðtali verði innihaldsríkara en það sem hér hefur verið ritað.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband