28.5.2008 | 01:33
Heima
Leiðin heim var greiðfær og heimahagarnir biðu í andakt eftir Vertinum. Vegirnir voru þokkalega góðir og fátt sem setti ökumanninn út af laginu. Nokkrum rolluskjátum var þó beitt á malbikið á víð og dreif á leiðinni sem telst þó til undantekninga núorðið því litlu lömbin una sér ekki lengur á steinsteyptu vegunum að neinu marki vegna þeirrar einföldu ástæðu að þar vex ekki stingandi strá og því lítið að bíta og brenna.
Ýmislegt þurfti þó að útrétta í gær áður en haldið var af stað heimleiðis. Olíufurstinn var sóttur heim og Vertinn hafði sama háttinn á þar og þegar ná þarf tali af ráðamönnum þjóðarinnar til að segja frá því góða starfi sem unnið er í Einarshúsi og reyna að ná smá klinki til endurbyggingar hússins í leiðinni. Sem sagt að mæta og beita sinn alkunnu ýtni við að koma sér inn fyrir þröskuldinn og nýta persónutöfrana til hins ýtrasta. Forstjóri Olís tók því fagnandi að fá margnefnda í heimsókn og taldi sig lukkulegan að eiga stund milli stríða akkúrat þegar margnefndur Vert kom arkandi í höfuðstöðvar fyrirtækisins við Klettagarða á stutta pilsinu með glingrið vafið um líkamann hér og þar. Það hreinlega gustaði um títtnefndan Vert í sunnan blænum sem lék við dreifbýlinginn sem var í heimsókn í höfuðborginni. Brosið var breiðara en oft áður á Vertinum og hinn ferski bolvíski blær fyllti skrifstofu forstjórans nýju lífi. Það náðist nú ekki samkomulag okkar á milli um að koma fyrir eldsneytistanki við húsið svona rétt til að sjá bílnum mínum fyrir olíu en vonir standa þó til að forstjórinn mæti á "Sögu frumkvöðla" í sumar og njóti vel. Einar Ben hefur staðið með okkur í uppbyggingunni og er einn af þeim fjölmörgu sem hafa gert drauminn okkar um endurreisn hússins að veruleika og stutt okkur með ráð og dáð frá fyrstu tíð.
Af fréttum að heiman eru þær helstar að snúrustaurnum var haganlega komið fyrir á túninu á ný eftir endurbætur og viðgerðir svo loksins getur Vertinn farið að hengja þvottinn út til þerris. Þessi tíðindi vekja þó eflaust nokkurn ugg hjá bæjarbúum því það er alkunna að ef þvottur sést á snúrum títtnefndrar rignir eldi og brennisteini daga og nætur. Himnarnir hreinlega rifna í sundur og allar flóðgáttir opnast með tilheyrandi vatnsveðri og harla litlum þurrki. Snúrustaurinn brotnaði í sundur í miðju og hefur sú hugsun leitað á téðan Vert að þær hafi verið teknar úr umferð af yfirnáttúrlegum öflum svo hann geti stytt einhvern tíma upp,. Bændur hafa víst án afláts beðið skapara himins og jarðar um að fjarlæga snúrustaurinn úr garðinum til að geta unnið að slætti svo hægt verði að fóðra skepnurnar og ekki þurfi að reka þær á malbikið sársvangar í leit að æti.
Menn ættu því núna að leggja það á hilluna að spá í garnir rolluskjáta sem aldar hafa verið á þurrfóðri enda ekkert að marka slíkar spár og Siggi stormur þarf nú að fara að hætta að lesa í veðurkortin og pæla í lægðum og hæðum því Vertinn í Víkinni spáir því að ef þvotturinn hangir á snúrunni.....þá er rigning.....ef ekki.....þá skín sól.
Vitið þið bara til..........
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.