27.5.2008 | 01:26
Úr dagbókinni
Sunnudagur- Utan þjónustusvæðis
Það er brakandi blíða í höfuðborginni er þessar línur eru ritaðar. Vertinn í Víkinni hefur verið aðgjörlega sambandslaus við umheiminn undanfarna daga enda hefur títtnefnd haft í nógu að snúast og öll tölvuvinna orðið að sitja á hakanum. Ástæðan er einföld og sjálfsögð því mikil tímamót voru í lífi sonarins og tengdadótturinnar sem nauðsynlegt var að upplifa með þeim og njóta en þetta afar geðuga par var að útskrifast sem stúdentar frá Borgarholtsskóla af náttúrufræðibraut. Skemmst er fá því að segjast að þessi kærustupör sómdu sér einstaklega vel með hvítu kollana og báru af í atgerfi öllu og það bókstaflega stirndi af þeim er þau tóku við prófskírteinum sínum . Get ég svoleiðis guðssvarið það að mér þótti enginn eins fagur á að líta eins og þau tvö í öllum fjölda þeirra sem þarna luku áfanga úr skólanum. Enginn leit eins viskulega út og enginn bar með sér annan eins yndisþokka og Andri og Þórunn er þau stilltu sér upp í hópi 195 útrkriftarnema Borgarholtsskóla í hópmyndatöku. Þar sannaðist svo sannarlega máltækið að hverjum þykir sinn fugl fagur því Vertinn var bókstaflega að springa úr monti yfir því að eiga þessa tvö sem báru af öllum þessum fríða flokki. Það var eins og hinn almáttugi faðir lýsti upp ásjónu þeirra tveggja sem gerði það að verkum að andlit þeirra skáru sig úr fjöldanum.
Nánasta fjölskylda þeirra beggja átti saman notalega kvöldstund yfir góðum veitingum og kvöldið leið og var yndislegt í alla staði. Góður matur var á boðstólnum þar sem íslenska fjallalambið lék aðaðhlutverkið og lærin sem eitt sinn tilheyrðu rollunni sem hafið bitið grasið hjá heimasætunum í Enniskoti seðjaði nú svanga maga í útskriftarveislunni. Ömmur og afar og mömmur og pabbar auk systkina borðuðu af bestu list og allt var eins og blómstrið eina.
Okkur finnst við reyndar eiga örlítið í Þóru, tviburasysturinni, sem er nánast alveg eins og Þórunn og sæta þarf lagi við að þekkja þær í sundur. Þær eru þó ekki eins og því síður alveg eins en samt er hægt að ruglast á þeim í fljótheitum ef þær eru eins klæddar og greiddar sömu greiðslunni og þessvegna finnst okkur trúlega eðlilegt að eiga þær báðar ef svo ber undir.
Kvöldið leið með útskriftarnemunum og annað partý beið og brunað var í Hafnarfjörðinn en þar beið Laufey vinkona mín en hún átti afmæli. Rennt var í hlaðið hjá henni er klukkan sló tólf á miðnætti og nóttin var ung enVertinn glataði þó ekki gullskónum um miðnættið enda var hún stödd í allt öðru ævintýri þar sem vonda stjúpan var á bak og burt og tötrum klædd Öskubuska víðsfjarri. Laufey vinkona er á besta aldri og lítur út eins og táningur enda létt á brún og brá líkt og Vertinn sjálf en hjá henni var þó bara hægt að staldra við í örlitla stund því Elsa og Fía, sem er sænsk vinkona, biðu þess að fá far ofan í miðbæ. Þar sem Vertinn drekkur ekkert sterkara en ávaxtasafa þótti tihlýðilegt að láta hana keyra út um borg og bý. Gríarlegur mannfjöldi var í miðbænum og halda mátti að rétt sem snöggvast að ég væri stödd í erlendri stórborg. Ef Vertinn í Víkinni hefði ekki verið orðin örmagna úr þreytu eftir annasaman dag hefði trúlega verið lag að líta inn á einn pöbb eða svo, en úthaldið var ekki meira en svo að tilhugsunin um að komast heim og halla sér var orðin svo sterk um þetta leiti, að ekki þýddi að láta annað eftir sér en að henda sér undir sæng og svífa á vit draumaheima.
Torvaldsen-bar varð því ekki þeirrar ánægju aðnjótandi að fá téðan Vert í heimsókn en lengi vel þótti hinn feikivinsæli drykkur Mohito langsamlega bestur á fyrrnefndum bar. Síðan Vertinn tók þá afdrifaríku ákvörðun að sneiða framhjá áfengum drykkjum á þeirri lífsleið sem eftir er, þykir kaffi og súkkulaði drykkurinn swiss mokka næstbestur til að dreypa á þegar barir höfuðborgarinnar eru heimsóttir. Það verður að taka þeim breytingum með æðruleysi því annað er ekki í boði
Harrison Ford
Það var ekki ómerkari maður en kynþokkafulli eldri borgarinn Harrison Ford sem leiddi Vertinn, Elsu og Þórunni um konungsdæmi kristals-hauskúpunnar og þar lentum við í miklum ævintýrum. Indíana Jones var aðeins farinn að grána en hefur þó engu gleymt og leysti hann ráðgátuna með góðri aðstoð aðstoðarmanna sinna. Karlinn eldist nokkuð vel og virðist enn geta sýnt góða takta á hvíta tjaldinu. Reyndar ber meira á tæknibrellum á víð og dreif í þessari mynd og má ætla að þær séu nýttar til að gera æsileg atriði trúverðugri og útkoman er bara nokkuð góð. Okkur þótti bara reglulega gaman.
Heimferð
Heimferð er fyrirhuguð á morgun en við mæðgurnar brunum tvær vestur á gula djásninu hans Andra. Þegar heim verður komið kemst Vertinn aftur í samband við umheiminn og verður því ekki lengur utan þjónustusvæðis. Bloggið verður því á vísum stað strax við heimkomuna.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.