Háannir

Það þarf svosem ekkert að hafa mörg orð um hvernig helgin gekk fyrir sig. Það var bókstaflega bandbrjálað að gera og vaktin staðin nótt sem nýtan dag. Rúmlega 300 manns hafa sótt Vertinn í Víkinni heim undanfarna daga og Einarshús hefur svo sannarlega iðað af lífi.

Elsa, María, Jónína og KollaElsa og María stóðu sig snilldarvel í Kjallarakeppninni og báru þær stöllur Jónína og Kolla sigur úr býtum í æsilegri viðureign um glundrið í dósunum frá Vífilfelli. Spurningarnar komu úr öllu áttum og var beint í allar áttir handa gestum til að svara. Aldrei slíku vant mætti Vertinn eins og hver annar og sat og spjallaði sallaróleg og var ekkert að skipta sér af eða grípa inn í atburðarrásina heldur lét vinnukonurnar um allt. Það er nefnilega kúnst að kunna að sleppa takinu og treysta öðrum fyrir hlutunum. Biggi Olgeirs og Elín Sveins dáleiddu okkur með söngnum sínum og fólk skemmti sér hið besta. Þetta var eitt af þessum kvöldum sem eru svo notaleg. Sumir dansa í dillandi takti og aðrir vaka meðan hinir sofa í sófanum og þannig á það að vera. Afslappað og gott andrúmsloft í Kjallaranum sem eitt sinn hýsti lager fyrir verslunina og þvottahús íbúanna.

Vertinn var vakinn í býtið daginn eftir því halda þurfti upp á afmæli frumkvöðulsins og athafnamannsins, Einars Guðfinnssonar en hann hefði orðið 110 ára þann 17. maí. Kökur voru skreyttar í bak og fyrir og kleinur settar á borðið til að allir gætu fengið nægju sína sem myndu koma í kaffið og heiðara minningu Einars heitins. Rúmlega eitthundrað manns mættu yfir daginn og stundin var hátíðleg og án efa hefur þessi gamli athafnamaður litið til þeirra sem sóttu gamla húsið hans heim í tilefni dagsins með velþóknun.

Varla var tími til að ganga frá eftir afmælið er 50 stútungskellur mættu í mat en það var partur af óvissuferð þeirra að matast í Einarshúsi. Sagan fylgdið auðvitað í kaupunum og hughrifnar hlustuðu þær á Vertinn segja frá lífi og störfum frumkvöðla í Bolungarvík. Mikill gleði ríkti meðal þessara kjarnkvenna enda voru þær karlmannslausar í skemmtiferð og hvað er hægt að hugsa sér betra en að fá að sletta úr klaufunum við og við í góðra vinkvennahópi.

Nóttin beið svo Vertsins og hennar skylduliðs en þó nokkrir litu við og brögðuðu á kolamola úr gömlu kolageymslunni . Önnur stóð því við barinn á meðan hin undirbjó veislu morgundagsins því sólarkaffi Grunnvíkingafélagsins beið næsta dags svo allt varð að vera klárt í tíma. Þess vegna reis Vertinn upp á fyrsta degi og hélt á við næstu veislu er dagaði og stóð teinrétt með söguna á takteinunum er Grunnvíkingar lögðu við hlustir og gleyptu í sig hvert einasta orð. Það var þéttsetinn bekkurinn í Einarshúsi þá, og ekki í fyrsta skipti og ekki í það síðasta, en allir komust þó fyrir með undraverðum hætti. Sumir urðu þó að gera sér að góðu að fara niður í Kjallarann og sitja þar að snæðingi og ekkert við því að gera. Húsið lagar sig þó undursamlega að gestum sínum og virðist rúma flesta sem þangað líta við en stundum getur það ekki þanið sig meira og því verður fólk að dreifa sér á milli hæða þegar svo ber undir.

Eins og gefur að skilja var allur vindurinn úr téðum Vert er heim var komið eftir erilsama daga og það skal engan undra og gott var að láta þreytuna líða úr sér í gærkvöldi. Reyndar beið fína heimasíðan glæný og glóðvolg og það kallaði á tölvuhangs fram á rauða nóttina. Óli lokbrá var búinn að gera ótal heiðarlegar tilraunir til að sáldra svefnduftinu yfir títtnefnda og loksins hafðist það að kíla þennan ofvirka Vert í Einarshúsi inn í draumaheima.

Dagurinn í dag bauð svo góðan daginn nokkuð snemma því bíllinn átti að fara í uppherslu inn á Ísafjörð. Hinar og þessar útréttingar fylgdu í kölfarið sem nauðsynlegar þurfa til að ýta sögu frumkvöðla í Bolungarvík úr vör. Prenta þarf plaköt og annað þvíumlíkt og þetta kallar allt á vinnu og sólarhringurinn virðist eitthvað svo stuttur í annan endann og það gefst varla tími til að klára öll þau verkefni sem bíða.

Háannir eru því þessa dagana og hætt við því að svo verði eitthvað áfram

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband