Spennufall

IMG_2935Það má með sanni segja að fermingardagurinn hafi tekist fullkomlega og stóðst fyllilega vonir og væntingar Vertsins í Víkinni og allra hinna. Allir draumar rættust og allt gekk eins og til var ætlast. Dagurinn tók á móti okkur í býtið með heiðum himni og sól og blíðu. Hólskirkja bókstaflega geislaði er hún bauð fermingarbörnin velkomin og foreldra þeirra ásamt gestum sínum. Kirkjubekkirnir áttu fullt í fangi með að rúma allan herskarann sem fylgdi hverju barni fyrir sig en þröngt mega sáttir sitja og það fór vel um flesta.

Lilja fór í greiðslu á hárgreiðslustofu bæjarins og rauði makkinn IMG_2937bylgjaðist blíðlega í fyrirfram ákveðnu lokkaflóði um höfuðið og heimagerð hárspöngin tók sig vel út með krullum og liðum sem lögðust um kollinn á yngismeynni. Laufey kom alla leið frá Hafnarfirði til að greiða Vertinum og fleiri glæsidömum innan fjölskyldunnar og snarhrokknu hári marnefndrar var haganlega fyrirkomið með spennum og hárlakki og glansaði téður Vert sem aldrei fyrr.  Mest stirndi þó af fermingarbarninu sjálfu sem tók athöfnina alvarlega og lifði sinn inn í atburðarrásina enda mun þessi dagur verða henni eftirminnilegur um aldur og ævi og eins gott að vera með á nótunum og með hugann við það sem er að gerast.

 

IMG_2963Mamman og pabbinn voru að vonum rígmontin af stelpunni sem hrifsuð var í fullorðinna manna tölu í einum vettvangi í litlu kirkjunni Grundarhólnum. Kirkjunni sem ég var fermd í sjálf fyrir bara aðeins örstuttu síðan. Á myndinni hér til hliðar má sá foreldrana með unglinginn á milli sín og dagurinn beið. Það var sunnudagsmorgunn og sólin hún sat við gluggann svo yndisleg. Dagurinn leið þó með örlitlum rigningarskúrum við og við og það var bara til að gera daginn enn eftirminnilegri enda var hlýtt úti og allt var eins best og á varð kosið. Einarshús skartaði sínu fegursta og notaði Gunna Ásgeirs tímann til að skreyta það að utan með bleikum blúndum og pífum á meðan við vorum í kirkjunni. Það kom skemmtilega á óvart að sjá hve skreytingar utanhúss bærðust í takt við íslenska fánann sem dreginn var að húni fyrir utan húsið í allri sinni dýrð. Þetta var æðislegt.

Veislan var öll til fyrirmyndar enda sáu meistarakokkar um trakteringarnar. Allra handa dýrðarkrásir IMG_3000voru á boðstólum í Einarshúsi eitt skiptið enn og hver rétturinn af öðrum bragðaðist guðdómlega. Lilja reið á vaðið og fékk sér fyrst að smakka á eðalfínum og gómsætum réttum fermingardagsins og hver gesturinn á fætur öðrum fylgdi í kjölfarið. Kaffinu á eftir var skolað niður með sætakökum og allir gátu farið heim saddir, sælir og ánægðir. Setið var langt fram á kvöld að spjalli og kvöldið leið í góðum félagsskap. Reyndar var Vertinn orðin lúin áður en yfir lauk og fæturnir þreyttir eftir daginn enda skórnir glænýir og áttu eftir að laga sig að fimu fótum eiganda síns. Er hallaði að miðnætti þótti fermingarbarninu gott að kúra sig undir sængina í nýja rúminu sem hún fékk í fermingargjöf og leggjast til hvílu eftir annasaman dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Katrín

Til hamingju öll

Katrín, 12.5.2008 kl. 20:49

2 identicon

Lilja til hamingju með ferminguna og allt

Sigríður og Stefán fermingarbróðir (IP-tala skráð) 13.5.2008 kl. 06:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband