9.5.2008 | 11:35
Humátt
Lognið fer frekar hratt yfir þessa stundina og það faldar í ef litið er inn Ísafjarðardjúp. Flugvélin sem ætlar að ferja fólkið mitt vestur er væntanleg upp úr miðjum degi og fyrst munu tengdaforeldrarnir og stóri bróðir minn lenda á Ísafjarðarflugvelli og húsbóndinn og hundur hans koma svo í kjölfarið. Mér sýnist við fyrstu sýn sem vindurinn komi úr þeirri átt sem líklegust þykir til lendinga hér vestra, en annars er ég ekki veðurglögg manneskja en tel þó nokkuð öruggt að áttin komi úr humátt sem er trúlega hin eina og rétta átt. Ekki hef ég þó haft mikinn tíma til að spá í garnir eða annan innmat til að sjá fyrir um veðurfar helgarinnar en hef lagt inn beiðni hjá skapara himins og jarðar um gott veður á hvítasunnudag þegar Liljan mín fermist.
Ekki það að auðvitað hef ég rýnt í veðurkort og séð að hæðir og lægðir liggja sitt á hvað og í kross eftir því hvort landakortið snýr upp eða niður og stundum virðast þær dreifa sér í eintóma hringi sem ég hvorki skil upp né niður í.
Tel ég þó nokkuð tryggt að ef litli veðurfréttamaðurinn hefur spáð stormi um helgina vænti ég þess að það verði sól og blíða og heiður himininn blár og fallegur.
Annað nær auðvitað engri átt.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Sæl Ragna. Datt alveg óvart inn á bloggið þitt. Gaman að heyra hvað allt gengur vel hjá ykkur. Þú ert greinilega kjarnakona hin mesta. Til hamingju með Lilju, Bergur minn fermdist 30.mars sl. Þetta eru orðnir stórir krakkar sem við eigum.
Góðar kveðjur til fjölskyldunnar.
kv.Hrönn
Hrönn Steingrímsdóttir (IP-tala skráð) 9.5.2008 kl. 16:35
Til hamingju með strákinn þinn sömuleiðis og bestu kveðjur til þín og þinna
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 10.5.2008 kl. 13:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.