Saga frumkvöðla í Bolungarvík

Ragna og Elvar LogiSaga frumkvöðla í Bolungarvík hlaut náð fyrir augum Menningarráðs Vestfjarða og mun því draumaleikritið mitt fara á fjalirnar innan skamms. Stemmt er að því að frumsýna leikritið á sjómannadagshelgina og það verður einstakt að geta boðið upp á Elvar Loga færa okkur einleik um frumkvöðlana, Einar Guðfinnsson og Pétur Oddsson í húsinu sem þeir bjuggu í á miklum uppgangstímum. Enn vantar reyndar þó nokkuð upp á að endar nái saman því eitt svona leikverk kostar auðvitað mikla peninga en Vertinn heldur ótrauður áfram að nurla einhverju klinki saman svo hægt verði að standa straum af kostnaði. Vonir standa því til að fjölmargir sæki sýninguna heim og komi okkur til aðstoðar við að setja sögu frumkvöðla í nýjan búning og styðji þannig við verkefnið. Smellt var af mynd við þetta hátíðlega tækifæri í dag og standa Vertinn og leikarinn kokhraust í félagsheimilinu á Hólmavík með styrkinn.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með styrkinn. það verður gaman að fara í leikhús í kjallarann... maður getur kannski fengið að stíga á svið,, vantar ekki allaf góða leikara?

Halla Signý (IP-tala skráð) 25.4.2008 kl. 08:33

2 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Til hamingju með styrkinn Ragna. Ég segi eins og Halla, það verður gaman að fá að koma í leikhús!

Ylfa Mist Helgadóttir, 27.4.2008 kl. 00:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband