Helgin

Sjálfsagt þykir að geta þess í tíma að spilavistin heldur áfram á föstudagskvöldið og spilafíklar eru hvattir til að mæta. Þegar spilamennskan hefur náð hámarki mun Biggi Olgeirs koma sér fyrir á stóra sviðinu í Kjallaranum og grípa í gítarinn og leika og syngja fram á nótt. Vertinn leggur til að bæjarbúar bregði undir sig betri fætinum og taki stefnuna í Kjallarann til að sýna sig og sjá aðra. Maður er umfram allt manns gaman og því fleiri sem láta sig vaða út í kvöldið, því skemmtilegri verður stemningin og meira gaman að vera til. Skákmót er um helgina og kannski verður hægt að sjá nýjum andlitum bregða fyrir sem eykur þar með á flóru fjölbreyttra ásjóna um kvöldið. Biggi Olgeirs er þekktur fyrir að halda úti stemningu og oftar en ekki hefur verið dansað við hans frambærilega tónlistarflutning. Vissara þykir því að fara að gera sig klára fyrir kvöldið.

 Sjáumst.......


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Verður eitthvað um að vera á laugardagskvöldið?

Gunna Gumma Hassa (IP-tala skráð) 22.4.2008 kl. 13:25

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Aðalfjörið er á föstudagskvöldið og tel ég tilvalið fyrir þig og þína að kíkja þá. Biggi Olgeirs mun heilla ykkur upp úr skónum eins og honum einum er lagið.

Skjáumst

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 24.4.2008 kl. 01:34

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband