Sagnakonan

Ég fæ bókstaflega fráhvarfseinkenni ef ég get ekki bloggað reglulega og nú hafa fráhvörfin lagst einkennilega þungt á mig og síðhvörfin bögga mig. Heilinn snýst bara hring eftir hring og hugurinn kallar á Vertinn í Víkinni og reynir af öllum mætti að leiða tölvuna til fylgis við sig. Ég næ mér niður við bloggskrif og ekki veitir af á þessum allsherjar veisluhöldum sem nú tröllríða Víkinni, að ná að róa sig niður við og við.

Haldið var upp á 100 ára afmæli Sparisjóðs Bolungarvíkur í gær og þar var mikill gleði og mikill glaumur. Það kom ekkert annað til greina en að láta títtnefndan Vert og hennar skyldulið sjá um veisluna frá A til Ö og þar skorti hvorki mat né drykk og allt gekk eins og í sögu. Það að hrista 150 manna veislu upp úr erminni sí svona er er vinna útaf fyrir sig og mikið áframhald. Stundum þarf að vinna fram á nóttina og ekkert við því að segja. Djúpsteiktar voru 1330 kjötbollur, og annað góðgæti hantérað eftir kúnstarinnar reglum og ekki var annað að heyra en að allt hefði bragðast með ágætum.

Hjartsláttur Vertsins tók þó nokkur aukaslög er styrkir úr Menningarsjóðnum voru tilkynntir en þrjú verkefni hlutu styrk á þessu afmælisári. Ef téður Vert væri með veikt hjarta hefðu hjartatöflur varla dugað til er sparisjóðsstjórinn tiltók Einarshús sem eitt af þeim verkefnum sem ákveðið var að styrkja. Ein milljón, hvorki meira né minna, var veitt til uppbyggingar hússins, en það hýsti Sparisjóð Bolungarvíkur fyrstu 22 æviár hans og Pétur Oddsson var fyrsti sparisjóðsstjórinn. Ef ég hefði haft tíma til að brynna músum, hefði ég án efa gert það á þessari stundu, en mikið varð ég glöð í hjarta mínu og mér þykir þetta mikil viðurkenning á okkar starfi við endurbygginguna og ég er svo þakklát.

 Ef ég hefði ekki haft þennan stuðning héðan og þaðan, væri húsið hans Péturs Oddssonar og seinna meir hús Einars Guðfinnssonar, ekki orðið það djásn sem það er í dag heldur trúlega hrörlegt niðurnýtt hús sem munað hefur fífil sinn fegri.

Annað gamalt hús fékk líka sinn skerf og átti það sannlega skilið. Hólskirkja hefur líka farið í endurnýjun lífdaga sína, líkt og Einarshús, og er að verða stórglæsileg. Henni voru færðar tíu milljónir frá Sparisjóðnum og ég samgleðst henni innilega. Mér þykir vænt um þessi gömlu hús og lifi mig inn í sögu þeirra. FHB hlaut einnig gríðarmikinn styrk, eða 25 milljónir til kaupa á húsgögnum er húsið verður tilbúið og er það vel. Við skulum vona að nýuppgert Félagsheimili nýtist Bolvíkingum þegar þar að kemur.

Eftir þessa tilkynningu á styrkjum hófst partýið fyrir alvöru og mikið lifandis skelfingar ósköp var gaman. Flestir gestir notuðu tækifærið og smelltu kossi á Vertinn í Víkinni til að samgleðjast með henni og einstaka stofnfjáreingandi notaði tækifærið og knúsaði " oftnefnda" í hvert sinn sem hún átti leið um svæðið. Einstaka aðdáandi bankans dásamaði " títtnefnda" í hástert og því meira sem gekk á berjasaftina jókst yndisleggleiki " margnefnds Verts" sem naut athyglinnar í hvívetna.

Það voru reyndar þreytt vinnuhjú sem komu heim eftir æði erilsama daga og gott var að leggjast á koddann í gærkvöldi og láta þreytu undanfarinna daga líða úr kroppnum.

Dagurinn í dag beið teinréttur eftir sínu fólki og Einarshús hafði næg verkefni. Gera þurfti húsið hreint eftir vinnu við viðargólfin, sem þarf að pússa reglulega. Allt var í ryki, allstaðar. Hreingerningin náði hámarki seinni partinn og skúringakústar og tuskur hreinlega æptu hvert á annað því súpuhópur var búinn að boða komu sína og allt varð að vera klárt. Einhver sá til þess að síðasta rykkornið væri þvegið burt á hárréttum tíma og Vertinn stóð skælbrosandi og tók á móti sínum gestum. Nauðsynlegt þótti að bregða sér í gervi sagnakonu, því saga hússins varð að fylgja með ,eins og svo oft áður, með annars ágætri gúllassúpu. Saga hússins er aldrei eins, en hún segir alltaf það sem segja þarf og heldur athygli fólks algjörlega.

Veisla aldarinnar bíður á föstudag og þá mun verða mikið um dýrðir, þá verður öllu tjaldað sem til er, þá verður gleði og glaumur í Einarshúsi. Þá mun Pétur Oddsson án efa vera á sveimi og hugsa með velþóknun til dagsins sem Sparisjóður Bolungarvíkur var stofnaður fyrir hundrað árum síðan og líta með velþóknun yfir farinn veg sjóðsins sem er síungur og hress.

Ég veit að Pétur Oddsson hefur glaðst yfir styrknum sem veittur var til uppbyggingar hússins og mun án efa lyfta glasi öðrum gestum helgarinnar til samlætis.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju með styrkinn   þú opnar bara bankaútibú í efstuhæðinni, handhægt þegar manni vantar fyrir ölkrúsinni ´þá væri hægt að slá vertinn um lán.

Halla Signý (IP-tala skráð) 17.4.2008 kl. 08:09

2 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

til hamingju !

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 18.4.2008 kl. 09:58

3 Smámynd: Elfar Logi Hannesson

Eigið þetta sannarlega skilið til lukku, hlakka til að sýna Steinöld hjá þér og vonadi koma svo fleiri monnýpeningamenn til að hljálpa okkur að koma draumsýningu okkar á fjalirnar í húsinu

Elfar Logi Hannesson, 18.4.2008 kl. 22:17

4 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Hamingja og aftur hamingja. Við Elvar Logi getum brosað hringinn eftir fréttir dagsins í dag. Draumasýningin okkar ætlar að komast á koppinn

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 19.4.2008 kl. 01:25

5 Smámynd: Marta

En frábært! Til hamingju! :D

Marta, 21.4.2008 kl. 01:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband