12.4.2008 | 12:27
Tölvufíkn
Oft er sagt að þegar einum öfgunum sleppi þá taki aðrar við. Það er alveg makalaust hvernig heilinn fúnkerar þegar öllu er á botninn hvolft. Ég held að ég sé haldin hálfgerðri tölvufíkn, því eftir að ég sendi Bakkus út á hafsauga með öllum sínum ófögnuði, sogast ég alltaf meira og meira inn í þetta apparat sem opnar fyrir mér allan heiminn á augabragði og reynir að þóknast mér á alla lund. Þetta er auðvitað bæði til bóta en getur líka verið slæmt, sérstaklega þegar einhver heimilismeðlimurinn þarf að ná sambandi við mig og segja mér eitthvað merkilegt og ég föst inni í heimi veraldarvefsins. Stundum bregða dætur mínar á það ráð að fara inn á msn-ið og tala við mig í gegnum tölvuna og þá hrekk ég í samband annað slagið og segi eitthvað af viti og átta mig um stund en svo kallar " viðhaldið " hærra en aldrei fyrr og ég set mig í stellingar og fer að gæla við lyklaborðið á þessum félaga mínum.
Mér til mikillar gleði þá þarf ég að vinna töluvert á tölvuna, þar sem ég er fréttaritari á Víkara, og fæ útrás fyrir skrif mín að hluta til. Bloggið hefur líka verið órjúfanlegur þáttur í lífi mínu rúma árið og það gerir mér afskaplega gott að skrifa hverja vitleysuna á fætur annarri og ég fíla þetta í botn. Núna fer mikill tími í að rita niður gamlar greinar úr gömlum dagblöðum sem mér áskotnaðist fyrir skömmu og munu líta dagsins ljós á fréttavef Bolvíkinga www.vikari.is innan skamms, án efa mörgum til ánægju.
Einhverjum viðvörunarbjöllum hringir þó í hugskoti hugans sem segir mér að ég þurfi að fara að draga úr þessari tölvunotkun minni og ná einbeitingunni fyrir hinu daglega lífi á ný og hætta að slá hlutunum á frest.
Þess vegna ætla ég núna að fara að taka eldhúsið í gegn og þvo nokkrar vélar, því allri röð og reglu var úthýst vegna veikindanna hjá fjölskyldunni. Ég ætla að vera dugleg frameftir degi og loka tölvunni um stund og lofa sjálfri mér því að opna hana ekki aftur fyrri en seinnipartinn í dag.
"forward to all" og " enter"
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.