Og þá varð ljós

Ég hefði án efa verið rafmagnslaus fram á vor ef húsbóndinn hefði ekki verið litið út um gluggann þegar við vorum búin að liggja í reiðileysi og bíða eftir rafmagninu í nærri tvo klukkutíma. Þá sá hann ljóstýrur í hverjum glugga hér í kring. Ástæðan var einföld..................það hafið slegið út. 

Pistill sem ég skrifað í myrkrinu er þó látinn flakka með að gamni.

 “Ástandinu í þessum skrifuðu orðum mætti lýsa sem Vertinn væri komin í moldarkofa á kotbýli í Djúpinu til forna. Ekkert rafmagn hefur verið hér til að lýsa upp híbýli manna í langan tíma sem gerir það að verkum að það er ekkert sjónvarp, engin örbylgjuofn sem poppar poppið og engin nettengd tölva. Litlu munar að tilhugsunin um að húsið fari að kólna upp nær brátt yfirhöndinni og ef Orkubú Vestfjarða fer ekki að taka til sinna ráða og hleypa rafmagni á innstungurnar í húsinu, segi ég upp rafmagnsreikningnum mínum, for good, og fer að eyða peningunum mínum í eitthvað annað.  

Norðan garri geisar úti fyrir og halda mætti að Bolungarvík hefði færst í humátt til Síberíu og hefði tekið sér bólfestu þar í grenndinni því lítið ber á vorkomu og hækkandi sól. Þess vegna er enn meiri nauðsyn á því að geta kveikt ljósin og lýst upp umhverfið í kring og kalla ég eftir ljósglætu hið fyrsta. Ég má kannski teljast lánsöm að geta legið eins og skata í rúminu og vera ekki knúin til að fara út fyrir dyr í þetta endemis veður en þykir þó lágmark að bjóða upp á rafljós í veikindunum. 

Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að það væri varaaflstöð í Víkinni sem menn hefðu upp á að hlaupa ef rafmagnið færi af í langan tíma, en hún virðist ekki vera brúkleg í dag. Hér hefur ekki verið hægt að kveikja ljósið nokkuð lengi og það sem verra er  að ég hef ekki getað notað tölvuna mína sem skildi og það nær auðvitað engri átt.

Þakklát má ég þó teljast að geta skrifað þessar línur niður á blað í myrkrinu til birtingar á eftir, eða þegar rafmagnið kemur á ný og flýtt þannig fyrir bloggskrifum mínum þennan dyntinn. Ef ég væri ekki enn svo asskoti lasin, færi ég án efa að skúra gólfin og þrífa húsið eða elda matinn nú eða bara þrífa gluggana að utan, en veikindin setja þarna strik í reikninginn sem hvorki ég né Orkubúið getur neitt að gert. Nokkuð ljóst má telja að ef hitinn fer að lækka í húsinu sökum rafmagnsleysis má búast við því að hitinn í Vertinum hækki að sama skapi og það gæti skapað glundroða milli mín og OV sem erfitt gæti að greiða úr ef til langframa er litið. 

Ekki það að þessi skortur á birtu rafmagnsljósa ærir mig ekkert né gerir mig óstöðuga því mig grunar að unnið sé hörðum hönum að lagfæringum og ég veit að þetta langvarandi rafmagnsleysi er ekki með ráðum gert. Þess vegna hef ég litlar áhyggjur af einhverjum styr milli mín og raforkufyrirtækisins enda ekki til neins að elta ólar við það”. 

Og þarna varð ljós !


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband