9.4.2008 | 14:10
Flensan
Hin illræmda flensa hefur lagt alla fjölskylduna að velli. Beinverkir og hiti einkenna þá pest sem settist upp á hér heima og ræfilsdómur er allsráðandi. Væl og hálfgerður aumingjadómur ríkir og vesalings heimilismeðlimir gráta sáran yfir því að geta ekki verið að gera eitthvað allt annað og skemmtilegra en að liggja í rúminu og kveljast.
Til allrar lukku tókst mér að klára veisluhöld og veitingar vegna undirskriftar jarðaganga um Óshlíð sem haldin voru í gær í Ráðhússalnum áður en ég lagðist í rúmið. Allur dagurinn var undirlagður í snittubrauðsmurningum og öðru sem til fellur í slíkum smörrebröds tilfæringum. Bera þurfti allt leirtau milli húsa en það vill til að við erum allar með krafta í kögglum og sterkar með afbrigðum. Allir voru í sínu fínast pússi og allir voru glaðir og brosandi í veislunni enda tilefni til að gleðjast yfir þessum áfanga.
Ég vippaði mér úr gervi veitingamanns í gervi bæjarfulltrúa til að geta setið með hinum og hlustað á ræður og fylgst með undirskriftinni. Þá fann ég svo glögg hvað hlutverk veitingamannsins á mikið betur við mig en gervi bæjarfulltrúans og er það vissulega umhugsunarefni sem ég tek á innan tíðar. Ég held satt best að segja að ég geri bæjarfélaginu mínu mikið meira gagn að berjast af fullum þunga fyrir mínum rekstri hér í bænum og lífga upp á menningarlífið á meðan einhver vill njóta. Þar stend ég og fell með mér og því sem ég er að gera og það hentar mér betur en að starfa með fólki sem ég jafnvel ekki treysti. Úr gervi bæjarfulltrúans brá ég mér í ham foreldris er ég fór í foreldraviðtal og þrátt fyrir að vera ætíð í hlutverki fréttaritara var ég á endanum komin upp í rúm í gervi sjúklings. Heilmikið afrek á einum degi ekki satt?
Vertinn í Víkinni bindur að sjálfsögðu vonir við það að þau umsvif sem skapast í kjölfar jarðgangagerðar komi til með að auka bjartsýni þeirra sem hér búa og geri það að verkum að mannlífið taki aðeins kipp. Mikil ládeyða hefur ríkt í plássinu undanfarið og andardrátturinn hefur verið afar veikur og hjartalínuritið nánast lárétt á köflum og það hefur vakið hjá mér ugg. Vertinn fær trúlega fyrst tilfinningu fyrir slíku enda lifir hún og hrærist í hringiðu mannlífsins.
Þarna örlar örlítið á neikvæðum straumum í þessum skrifum mínum en kannski hefur flensan og veðrið þessi áhrif á jákvæð skrif sem einkennt hafa þessi bloggskrif mín hingað til. Dagurinn í dag ber,einhverra hluta vegna, þá hugsun með sér að ég sé á vitlausum stað, á vitlausum tíma að gera vitlausa hluti. Svona hugsanir geta leitað á mann þegar allt virðist leika í lyndi og vonandi verða þær horfnar þegar ég næ heilsu á ný. Vonandi fæ ég aftur þennan óbilandi kraft sem er nauðsynlegur til að standa í veitingarekstri í Bolungarvík er ég hressist. Ég held í raun að Bolungavík yrði ekki svipur hjá sjón án þess.
Aðrar stærri og meiri veislur einkenna næstu viku og eins gott að þessi dáleiðisdrulla sem læðist að mér í hlutverki hitaveiki og svartsýniskasti verði horfin á braut þegar þar að kemur.
Adios
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
kannski aðeins of mörg hlutverk á einum degi og þá verður maður veikur
Láttu þér batna sem fyrst kona
Katrín, 9.4.2008 kl. 22:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.