Risin úr rekkju

Vertinn er risin úr rekkju fyrir allar aldir. Veðrið þokkalegt og víða sést í heiðan himinn. Hægt er með herkjum að sjá út um saltstorkna glugga, krumma vappa á götunni að leita ætis, og heyra má þann sama krunka úti er hann kallar á nafna sinn. Sólin varpar geislum sínum með herkjum á herlegheitin og ró og yfirvegun virðist ætla að einkenna daginn.

Leiðin liggur þó innan skamms á básinn minn í Einarshúsi því kostgangarnir mínir þurfa að borða í hádeginu og ég borða yfirleitt þeim til samlætis. Það styrkir reksturinn að hafa fastan kúnnahóp og gerir það að verkum að ég gat ráðið til mín manneskju í fullt starf. Ég get þá meira svona leikið mér í tölvunni o.þ.h og sinnt öðrum hlutum af kostgæfni þegar svo ber undir.

Ilmandi gúllassúpa verður á boðstólnum í hádeginu á morgun, föstudag, fyrir svanga maga og eru menn hvattir til að líta upp úr amstri hversdagsleikans og bragða á þessari eðalfínu súpu Guðlaugar í Tungu sem er orðin vel kunn gestum og gangandi. Á föstudagskvöldið er svo lokakvöldið í spilavistinni og rennur glerlistaverkið "laufalampinn" þá til einhvers heppins spilafíkils. Þá munu Elsa og Gunna vera yfir undir og allt um kring því Vertinn verður að sjálfsögðu að sinna samkvæmislífinu og mæta á  afmælisfund Oddfellow reglunnar á sama andartaki og spilavistin fer fram.

Þessi afmælisfundur kallar á kjól og hvítt. Karlar skarta kjólfötum og draga þar með á eftir sér langt slör og líta allir út eins og mörgæsir og þekkjast varla í sundur og konur er fínar, svo fínar að ég neyðist trúlega til að kaupa mér fallegan kjól af þessu tilefni. Slakt gengi íslensku krónunnar hefur ekkert að segja í því sambandi enda mun kjóllinn væntanlega ekki vera það dýr að hann raski gjaldeyrisviðskiptum milli Íslands og annarra landa svo neinu nemi. Allt óþarfa glingur verður þó trúlega látið sitja á hakanum að þessu sinni og skartgripabúðir geta því haldið ró sinni um hríð. Glingurviðskipti gætu hugsanlega varpað einhverju ójafnvægi á jafnvægisleysi okkar gjaldmiðils og því læt ég það vera að skapa meiri óráðsíu er orðin er.

Vertinn fær hvorki meira né minna en að koma inn í hið "allraheilagasta" í húsi þeirra Oddfellow manna og er það víst einstæður viðburður að kerlingar þessa karla í háleynireglunni fái að sjá himnaríki með þessum hætti. Ég mun að sjálfsögðu vera búin að fara með bænirnar mínar og þylja trúarjátninguna upp rétt áður en ég lít inn í helgidóminn svo ég fái að njóta andartaksins til fulls enda tel ég nauðsynlagt að mæta með hreinan anda, óflekkað mannorð og laus allra synda er ég stíg inn í þennan helga dóm reglu Oddfellowstúkumanna. 

Auðvita tekur Vertinn öllu veisluhöldum fagnandi enda mikil selskapsmanneskja og hefur gaman í flestum tilvikum af mannfögnuðum og bindur vonir við að það verði gaman.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband