26.3.2008 | 00:36
Kannski
Þá er einni mestu áthátíð ársins lokið. Reyktir hamborgarahryggir í bland við rjómasósur og bakaðar kartöflur hafa runnið sitt skeið á enda og jafnvægi er að komast á meltinguna á ný. Páskarnir eru ætíð boðnir velkomnir á litla veitingastaðnum mínum enda halda slíkar hátíðir, með tilheyrandi mannfögnuðum, staðnum á floti. Í hönd fara endalausar veislur og ekkert lát er á skemmtanahaldi og uppákomum í tengslum við hin og þessi tækifæri og ekkert er í sjónmáli nema látlaust áframhald. Ljóst er að fjórar til fimm manneskjur verða fastráðnar í sumar í Einarshúsi enda verður opið allan daginn frá morgni til kvölds og ég veit að það verður nóg að gera. Iðandi líf var í húsinu í fyrrasumar og ferðamenn duglegir að koma við í trakteringar og mig grunar að straumurinn aukist svo um munar í sumar og eins gott að standa klár þegar þar að kemur.
Einarshús rís tignarlega undir öllu sem fer fram þar innandyra og er stolt af hverri heimsókn, hverjum viðburði og hverri uppákomu. Ég veit að húsið nikkar til mín í velþóknun hvern einasta dag og lætur mig finna væntumþykju sína og aðdáun með blíðu augnaráði og breiðu brosi. Það býr stór og góð sál í þessari öldnu byggingu sem fær mig til að njóta þessa að vera í nálægð þess.
Þau tíðindi gerðust að Þórunn veiktist og var að leggjast inn á sjúkrahúsið á Akureyri og hefur dvalið þar í nokkra daga. Andri hefur vakað yfir henni eins og sannur kærasti á að gera og huggað hana í hvívetna. Ekkert hefur þó fundist athugavert að sveitastelpunni frá Enniskoti þrátt fyrir yfirgripsmiklar rannsóknir og skoðanir. Hún virðist þó eitthvað vera að lagast og vonandi fær hún að fara heim á morgun. Andri hefur verið hálf vængbrotinn á Akureyri því þar þekkjum við afarlítið til og þurfti hann að gista á gistiheimili í svefnpokaplássi en fékk svo inni hjá einhverjum ættingjum tengdamömmu sinnar tilvonandi og er hann þar í nótt. Vonandi komast kærustupörin til síns heima sem fljótast svo lífið geti orðið eðlilegt á ný.
Af því að minnst er að Akureyri þá má það trúlega teljast nokkuð furðulegt hve fáa ég þekki á því svæði. Eitt sinn, er ég var þar um tíma um sumar, gat ég gleymt mér við að horfa á Akureyringa. Ég hef mjög gaman af því að horfa á fólk og stúdera útlit þess, svona dags daglega dags. Mér þótti Akureyringar frekar ófríðir upp til hópa og skildi ekkert í svipbrigðum þeirra og andlitsfalli. Trúlega mátti rekja þennan fegurðarsmekk minn til þess hve útlit þeirra og atgervi var allt ó-vestfirskt og þeir virtust ekki bera með sér hið bjarta yfirlit vestfirskrar náttúru. Mér fannst ég vera komin í annan heim þar sem allt annar þjóðflokkur bjó. Ég sá engan svip sem mér fannst kunnuglegur og ég gat ekki lesið neitt út úr neinum. Ég vissi semsagt ekkert hverra manna neinn var sem ég rakst á alla þessa viku sem ég dvali á Akureyri. Auðvitað bar þetta fólk með sér keim eyfirskrar sveitar sem var bara allt öðruvísi en svipbrigði stórbrotinna vestfirskra fjalla og söndugrar fjöru hér vestra. Seinna sá ég að fólkið var allt fagurt og frítt, bara ekki börn sömu fjöru og fjalla og ég og því örlítið öðruvísi fyrir vikið.
Kannski hafði lífið ekki leikið norlendinga eins og vestfirska kotbændur sem bjuggu oft við æði kröpp kjör í denn við erfiðar aðstæður frá náttúrunnar hendi, kannski erum við bara ófríð þegar allt kemur til alls, stórgerð líkt og stórskorin fjöllin og grófgerð líkt og hrjóstrugar heiðarnar.
Kannski!!!
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.