Sól skein í heiði

Sól skein í heiði er Vertinn fór í hestareið ásamt öðrum hestamönnum á svæðinu í gærdag. Elsa og Lilja fóru á stökki upp stíga og högguðust ekki á sínum þýðu skepnum. Blesi á það til að vera örlítið hastur þegar hann er í þeim ham og fer stundum bara fetið þegar ætlast er til að hann fari á brokk. Það verður að segjast eins og er að knapinn kann ekki alveg á stjórnborðið á hrossinu og því fer hann á brokkfet þegar reynt er að notast við töltskeið. Stundum reynir Vertinn að beita ofsastökki fyrir sig þegar ríður á en oftar en ekki lullar hann bara við fót enda gamall og þreyttur. Þessi stórskemmtilegi reiðtúr í fallega veðri gærdagsins hefur þó skilið eftir sig töluverðar harðsperrur sem sitja sem fastast og neita að hverfa af rassinum og lærunum en það er þó vont en venst.

Eftir að hafa snætt dýrindis kvöldverð í félagsheimili hestamanna þar sem hangikjöt og uppstúf voru á boðstólnum var stefnan tekin inn í Ísafjarðarkirkju þar sem haldin var AA fundur í svo notalegu umhverfi. AA samtökin eiga afmæli um þessar mundir og því tilhlýðilegt að minnast þess en samtökin voru stofnuð árið 1934. Þau hafa hjálpað mörgum að ná áttum og lifa eðlilegu lífi. Eitthvað er sammerkt með öllum óvirkum ölkum, allir hafa einhvernvegin sömu sögu að segja.

Rokkhátíðin var heimsótt eftir kirkjuferðina enda var Lilja þar ásamt vinkonum sínum. Hljómsveitin Hjálmar var að spila þegar við litum inn og var meistari Megas á gítarnum. Þeir voru sérdeilis, aldeilis frábærir og Vertinn dillaði sér taktfast eftir raggy taktinum ásamt öllum hinum ótalmörgu sem voru að hlusta og dilla sér þétt upp við alla hina sem hreyfðust í takti við mann og annan. Ótrúlega mikill mannfjöldi var þarna samankomin og það kom mér á óvart hvað mér þótti gaman, því mér fannst hátíðin í fyrra eitthvað óspennandi enda staldraði þá ég stutt við. Megas steig svo á stokk og svei mér þá ef hann gat ekki gert sig skiljanlegan á íslenskri tungu í textum sínum enda er maðurinn búinn að fá bunch of money fyrir að vera svo góður í íslenskri málfræði. Trúlega hefur það haft sitt að segja að eyrun á honum eru svo stór og án efa hefur það gert gæfumuninn hve hljóðið dreifist jafnt og þétt um salinn er því var varpað frá eyrnavængjunum til mannfjöldans. Karlinn er nú ekki alveg sá flottasti en hann hefur eitthvað sem fær mann til að vera stoltur af því að vera Íslendingur og tala reiprennandi íslensku á Íslandi.

Slagbrandinum var slegið frá Kjallaranum rétt eftir miðnættið. Frekar rólegt var fram eftir og haldið var í koju um þrjúleitið. Vertinn stóð þó teinrétt í hádeginu í dag og tók á móti blaðamönnum héðan og þaðan úr veröldinni sem sækja rokkhátíðina heim og höfðu haft spurnir af Vertinum og komu þess vegna  í súpu. Það kemur sér ætíð vel að fá slíkt fólk í heimsókn í hús gleðinnar á fallegum dögum.

Benni Sig mætir í kvöld og ég hef heyrt að þar verði aðalstuðið á kjálkanum í kvöld. Þið fáið að heyra meira frá því, vonandi á  morgun.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband