Föstudagurinn langi

Yfir deginum í dag er yfirvegun og hógværð. Vertinn í Víkinni getur aðeins um frjálst höfuð strokið og náð upp þreki fyrir verkefni morgundagsins. Það er stund milli stríða en nú er vertíð í veitingabransanum. Mikið af fólki í bænum og töluvert líf í mannskapnum.

Hundrað manna fermingaveislu var rúllað upp í gær í Einarshúsi sem tókst vel í alla staði enda ekki við öðru að búast með allt þetta framúrskarandi vinnufólk sem ég hef á mínum snærum. Kjötréttir í bland við sælkerasallad voru á boðstólum í bland við marengstertur og annað góðgæti. Fermingabarnið, Bergþór Örn, var í sínu fínasta pússi og dagurinn verður honum vonandi eftirminnilegur. Einarshúsið skartaði sínu fegursta og var skreytt hátt og lágt í tilefni dagsins og allt gekk eins og blómstrið eina. Allt var nýmálað í Kjallaranum því einstaka fjölskyldan hennar Gunnu Ásgeirs kom og málaði allt í hólf og gólf og það bókstaflega stirndi af öllu þar niðri og þegar gestirnir komu var allt fullkomið.

Vertinn varð að hafa snör handtökin því annað fermingarbarn beið út í bæ eftir að geta boðið til veislu því Halldóra Jónasdóttir stóð glaðbeitt í fermingarkjólnum sínum og tók á móti sínum gestum. Borð svignuðu undan hnallþórum á þeim bæ og sætabrauð átti greiða leið ofan í Vertinn og hennar skildulið. Ekki eru nema tæpir tveir mánuðir þangað til Lilja fermist og ég er full tilhlökkunar. Þá ætlar Vertinn að vera í fríi og njóta dagsins með fjölskyldunni og gestum sínum, þá kemur eðalkokkur og matreiðir dýrindisrétti ofan í fólkið mitt.

Einar Örn tróð upp á miðvikudagskvöldið og hann var fantagóður. Það kvöld unnu Elsa og Þórunn á barnum niðri á meðan Guðlaug og Gunna þræluðu í eldhúsinu við að undirbúa fermingarveisluna sem vera átti daginn eftir. Vertinn svona meira gekk á milli hæða og hafði yfirumsjón með hinu og þessu og sagði fyrir verkum þegar við átti eða bara flæktist fyrir ef svo bar undir. Unga fólkið dansaði tryllta dansa við undirleik Einars og félaga hans á nýmáluðu gólfinu og vel var tekið undir í söngnum. Það var semsagt þrumufjör þetta kvöld og mjög gaman.

Reyndar virðist það gerast ósjálfrátt að óvirki alkinn fjarlægist smátt og smátt umhverfi þar sem vín er haft um hönd. Ég hef það á tilfinningunni að ég komi til með að láta aðra vinna á nóttunni þegar fram í sækir og trúlega mátti búast við því að að þeirri stund kæmi. Ég stend þá frekar vaktina á daginn. Sextán mánuðir eru liðnir frá því að ég fór sjálfviljug á snúruna og lét þurrka mig upp. Ég sé ekki eftir því einn einasta dag og nýt mín hverja einustu mínútu.

 Benni Sig ætlar að mæta á laugardagskvöldið ásamt leyninúmerum héðan og þaðan. Náfrændi Kim Larsens mætir jafnvel á svæðið og tekur undir með Benna. Mikið af fólki virðist stefna í Kjallarann það kvöld og Benni mun slá í gegn eins og ætíð.

Einu teiti ætla ég þó ekki að missa af fyrir nokkurn mun en það mun verða boðið til samkomu í Kjallaranum á miðnætti á páskadagskvöld. Þá ætlar heil hljómsveit að stíga á stokk í fyrsta sinni og skemmta gestum og gangandi. Haltur leiðir blindan er samansafn miðaldra skallapoppara sem hafa verið að æfa samhljóminn undanfarið og halda hljómsveitaræfingar daglega. Yfir 90 lög eru á stefnuskránni og Jón Bjarni lemur nú húðir eins og honum sé borgað fyrir það. Það hreinlega datt af mér og krökkunum andlitið þegar hann tók í trommurnar í fyrsta sinn eftir 30 ára hlé og okkur fannst hann rosalega góður. Mikill spenningur er fyrir kvöldinu og ég hef þá trú að einhverjir láti sjá sig. Að sjálfsögðu er aðalatriðið að hafa gaman af uppátækinu en þeir félagar taka þetta mjög alvarlega og ætla að reyna að standa sig fyrir Vertinn. Hef ég þó heyrt eftir mjög óáreiðanlegum heimildum að Sssólar menn séu með lífið í lúkunum yfir þessari uppákomu í Kjallaranum en þeir eru með ball á Ísafirði þetta sama kvöld og hræðast dræma aðsókn á ballið hjá sér vegna þessa uppistands hjá þessari eðalgrúppu. Ég get þó upplýst það hér og nú að Haltur leiðir blindan kann nokkur lög með Sssól og ég get fullyrt að sólin þeirra Hlyns, Gumma, Sigurðar og Jóns Bjarna mun skína enn skærar á páskadagskvöld en sólir nokkurra annarra hljómsveita á svæðinu.

Ég má til með að láta myndband af trommaranum er hann tók í trommurnar í fyrsta sinn í langan tíma. Hljóðið berst kannski ekki sem berst til hlustenda en þeir sem vilja heyra meira komi á páskadagskvöld í Kjallarann.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

  Flottur töffari hefur greinilega engu gleymt. Sé ekki að ég komist vestur núna til að hlusta á trommarann það bíður bara betri tíma. Gleðilega páska og góða skemmtun.   KV Erla

Erla (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband