5.3.2008 | 20:29
Ekki við öllu séð
Spyrill í Kjallarakeppninni á föstudaginn verður enginn annar er Ingólfur Hallgrímsson. Hann starfar nú sem verslunarstjóri í Samkaup og þykist ég vita að hann spyrji að hluta til um verðlag í matvöruverslunum vítt og breytt um landið. Ætla má þó að strákurinn viti eitt og annað um hitt og þetta svo tilvalið telst því að vera vel með á nótunum þegar strákurinn fer að reka garninrnar úr þeim sem taka þátt. Spurningakeppnin hefst upp úr klukkan 22:30 eða þegar allir eru klárir og til í slaginn. Verðlaun eru í fljótandi formi í boði Vífilfells. Ætli Vertinn skelli ekki á tveir fyrir einn í kolageymslunni til miðnættist að vanda.
Það sem setja mun svo punktinn yfir i-ið um helgina er heimsókn þeirra Jómma og Stjána hingað vestur. Þeir munu að sjálfsögðu láta ljós sitt skína í Kjallaranum eins og ætíð þegar þeir vísitera æskustöðvarnar og ég veit að andrúmsloftið á eftir að verða rafmagnað er þeir stíga á stokk á laugardagskvöldið. Við sem þekkjum til einstakra sönghæfileika þessa eðalfínu tónlistarmanna vitum að það á eftir að verða brjálað stuð og mikið fjör er strákarnir koma sér fyrir á stóra sviðinu og ég hvet sem flesta til að koma og syngja með þessum peyjum.
Þess ber að geta í framhjáhlaupi að hægt er að hlýða á undurfagra rödd Jónmundar á tónlistarspilaranum mínum hér til hliðar. Þar syngur hann lag eftir sig, við texta eftir mig sem ég birti eitt sinn á blogginu og var textinn kveðja til vinar. Jómmi hristi lag fram úr erminni sem hann nefnir "Eftirmæli" og sendi mér fyrir margt löngu síðan og gerði sér vonir um það að ég myndi hafa lagið fyrir mig og ekki leyfa neinum öðrum að njóta. Ég gat ekki setið á mér lengur og hef því birt það öllum til ánægju og tel ég líklegt að Jómmi sé pínu lítið upp með sér fyrir vikið.
Ef mig hefði grunað að ég væri svona músíkölsk væri ég fyrir margt löngu búin að búa til texta við tónverk meistaranna æ ofan í æ. Vagner, Bitófen og Bakk væru sveittir dagana út í gegn við að smíða tónverk utan um textana mína og gera þeim skil í sinfóníum og slagverksóratóríum ef þeir væru ekki löngu komnir undir græna torfu.
En það er ekki við öllu séð
Sjáumst um helgina
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Athugasemdir
Æ ég væri nú alveg til í að kíkja á svona eins og eitt stykki kjallarakeppni um helgina.. nei afskaðið Á helginni :) þetta er farið að síast inn :) Bið bara að heilsa í Kjallarann og hlakka til að kíkja þangað (sem vonandi verður í sumarbyrjun).
Ilmur (IP-tala skráð) 6.3.2008 kl. 23:14
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.