3.3.2008 | 22:54
Einhverra hluta vegna
Einhverra hluta vegna hef ég þurft að ná andanum frá bloggskrifum undanfarið. Hugurinn hefur leitað annað enda er um nóg að hugsa þessar stundirnar og tíminn flýgur. Það að vera fréttaritari í smábæ vestur á fjörðum þar sem akkúrat "ALLT" er að gerast er ærin vinna. Ég hef ekki fyrr nuddað stírurnar úr augunum en tölvan kallar háum rómi á Vertinn í Víkinni og bíður með óþreyju að kveikt sé á henni og takkaborðið stendur tilbúið fyrir átök dagsins. Helst af öllu verð ég að vera standbæ hér og þar og flestir telja nauðsynlegt að ég sé allstaðar ef svo ber undir. Ef ég er ekki að gæða mér á snittum og öðru góðgæti við afhendingu tækja í sjúkraþjálfunina þá verð ég að vera að gleypa í mig dýrðarkrásir á árshátíð eldri borgara á meðan ég tek myndir af gestum og gangandi til að birta á Víkaranum. Ef ég er ekki að skrifa fréttir um eitt og annað reyni ég eftir fremsta megi að snapa auglýsingar svo hægt sé að reka þennan margfræga netmiðil ásamt því að rétta við brúðkaup.is og færa hann aftur í fyrra horf svo ég veit alveg hvað ég hef við tímann að gera. Eitt telst þó til tekna í þessu samhengi öllu sem er ekki síður mikilvægt að benda á, að mér leiðist ekki hætishót þessa dagana og áður en ég get snúið mér við er dagur að kveldi kominn.
Nóg er að gera í Einarshúsi og reksturinn heldur áfram að vinda upp á sig. Þær gleðifréttir sem ég get fært lesendum á silfurfati segja allt sem segja þarf, því ég hef ráðið eina færustu húsmóður hér í bænum í fullt starf frá og með næstu mánaðarmótum við að vinna við reksturinn sem hlýtur að teljast afar gott innlegg í atvinnuna í bænum. Við erum þvi fjórar kvensurnar sem vinnum að rekstrinum með einum eða öðrum hætti og ég segi það með fullri vissu að það eru efnilegustu konurnar í bænum og er ég heppnust af þeim öllum að hafa þær Elsu, Gunnu og Guðlaugu í vinnu hjá mér. Reyndar má ekki gleyma smiðunum sem vinna hörðum við uppbygginguna en fyrir utan Jón Bjarna hefur Finnbogi Bjarna staðið í ströngu við að smíða utan með gluggunum og Albert rafvirki er alltaf í stuði með reglulegu millibili er hann kemur til að þóknast eigendum Einarshúss og tengja rafmagn hér og þar. Ég bind vonir við að litla fyrirtækið mitt fái áfram að vaxa og dafna svo ég geti ráðið til mín enn fleira fólk í framtíðinni og fái áfram stuðlað að öflugu menningarlífi í bænum auk þess að taka á móti ferðamönnum með bros á vör í allskyns trakteringar.
Annars tekur eitt og annað tíma minn. Hrossin þurfa tugguna sína að vanda og þeir taka mér ætíð fagnandi. Það viðurkennist þó fúslega að Vertinn mætti alveg fara oftar á bak en segjast verður þó alveg eins og er og telst mér trúlega til tekna að veðurfarið hefur ekki verið upp á marga fiska og ekki oft virðað til útreiðatúra svo þar liggur skýringin að hluta til. Kirkjusókn er einnig með meira móti þennan veturinn og rekja má það til fermingarundirbúnings dótturinnar og ekkert nema gott um það að segja. Mamma og pabbi eru líka fastur liður í tilverunni því þau fagna því ætíð að ég reki inn nefið og ef ég á þess kost kíki ég annan hvern dag og jafnvel oftar.
Af framansögðu má því glögglega sjá að ég hef ég nóg fyrir stafni...........einhverra hluta vegna.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.