Kjallarakeppnin byrjar

Þar kom að því að Kjallarakeppnin fari á stjá að nýju. Spyrillinn er eldklár náungi sem veit eitt og annað. Hann gæti ugglaust talað tungum í kvöld og blandað færeysku saman við móðurmálið því hann ól manninn á Færeyjum um tíma. Ég myndi mæta tímanlega og vera búin að lesa mér til um eitt og annað fyrir kvöldið svo svörin við spurningum Einars Jóns liggi ljós fyrir. Keppnin efst klukkan 22:30 eða fljótlega upp úr því og ískaldur og freyðandi kolamolinn verur á góðu verði til að byrja með.

Annars er Vertinn í góðu yfirlæti í henni Reykjavík. Einstakur dugnaður hefur verið sýndur í eyðslu á peningum og hátískuvöruverslandi sóttar heim í gríð og erg. Smáralindin tekur mér ætíð fagnandi og getur ekki leynt aðdáun sinni á veru Vertsins í verslunarmiðstöðinni. Kringlan undraðist þó viðbrögð Vertsins í Víkinni er hún skellti upp úr í virtri verslun sem ber nafnið Kultur. Þar blöstu við hinar þokkalegustu buxur á 54.900 krónur - fimmtíuþúsundogníuhundruðkrónur- sagt og skrifað. Marrgnefndur Vert að vestan fékk yfir sig mikið hláturkast og varð að yfirgefa búðina í snarhasti enda engin hemja að hlæja í svona dýrri búð. Tilvonandi fermingarbarnið fylltist sjálfvorkunn eitt augnablik yfir þeim ósköpum að eiga mömmu sem hlær eins og fífl að ómerkilegum hlutum eins og þessum og hélt sig í hæfilegri fjarlægð um tíma en síðan féll atvikið í gleymskunnar dá.

Buxurnar hafa án efa verið ofnar úr inversku silki sem framleitt er af silkifiðrildum og þær hafa trúlega verið bryddaðar ósýnilegum gullþráðum og saumaðar af hagleikskonum þar ytra og kannski hafa börn verið látin vinna við að pressa brotin í buxurnar til að þóknast vestrænum konum. Vertinn lætur ekki glepjast af slíku og lætur sér næga ódýrari vörur.

Reyndar er svoldin sálfræði tengd innkaupum kvenna því ef ég hefði keypt buxurnar þá væri ég þessum peningum fátækari en núna líður mér alveg eins og ég eigi þá inni og megi því kaupa mér eitthvað fallegt í staðinn. Merkilegt nokk.

Fermingarfötin eru komin í höfn og borðskraut af flottustu sort hafa verið keypt til að gera útlit og umgjörð dagsins sem bestan en 11. maí er stóri dagurinn og þá mun Lilja fermast. Þá verður síðast barnið mitt hrifsað í tölu fullorðinna með ógnarhraða en hún mun áfram verða litla barnið mitt eins og þau hin.

Enn ein veislan því í sjónmáli. Síðan má búast við giftingaveislum og skírnarveislum í framhaldinu í bland við afmæli og aðra viðburði sem tilvalið telst að halda upp á. Allt endar þetta svo á jarðaförum en það er vonandi síðara tíma umhugsunarefni.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Er 54.900 krónur sagt og skrifað  - fimmtíuþúsundogníuhundruðkrónur- ? Vantar ekki örfáa þúsundkalla þarna ;)

Elsa (IP-tala skráð) 23.2.2008 kl. 12:56

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Verðið er bæði með og án virðisauka

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 23.2.2008 kl. 13:00

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband