Trommusett óskast

Það vill þannig til að Vertinn í Víkinni tilheyrir þeim hópi fólks sem eiga aðgang að þorrablóti valinkunnra andans manna og kvenna sem tilheyra stúkum sem bera heitin Gestur og Þórey og eru innvinkluð og innmúruð í  Oddfellow regluna. Þar sem ég er gift inn í þessa reglusömu stúku fékk ég að heiðra samkomuna með nærveru minni í gærkvöldi enda fell ég vel að þeim reglum sem þar ríkja um hverjir hafa aðgang og hverjir ekki. Mikið var lagt í skemmtiatriði ýmiskonar og allt kapp lagt á að fólk skemmti sér hið besta. Stórhljómsveit var sett á laggirnar í tilefni af kvöldinu sem innihélt kynstrin öll af skemmtikröftum héðan og þaðan sem kunnu einhver lifandis býsn á hljóðfæri og tilheyrðu skemmtinefndinni sem sá um að skemmta fólki þetta kvöld.

Uppistaðan í hljómsveitinni var tvíeykið " Haltur leiðir blindan" sem hefur troðið upp við góðan orðstír í Kjallaranum og stilltu þeir kappar gítarstrengina sína af mikilli fimi. Nauðsynlegt þótti að fá til liðs við sig nýlistahljómsveitina" Einfættur með eineygðan í eftirdragi" því það vantaði bassann í bandið og nauðsynlegt taldist að hafa trommara af guðs náð líka með í óratóríunni. Tvær tónvissar og töfrandi grúppíur hristu síðan slagverk í takt við tónaflóðið til að fullkomna meistaraverkið. Án þess að vera gagnrýnin á verk sveitarinnar, sem var í alla staði mjög þokkaleg, þá get ég ekki látið hjá líða að nefna trommuleikarann sérstaklega en hann þótti sína snilldartakta á bongótrommuna enda þaulvanur trommuleik frá gamalli tíð. Jón Bjarni þótti afar liðtækur með kjuðana sína á árum áður og efnilegur á trommurnar og ekki var annað að sjá en að hann hefði reglulega gaman af því að vera byrjaður í bransanum aftur. Vertinn í Víkinni bókaði bandið hið snarasta til að troða upp í Einarshúsi við fyrsta tækifæri og teljast páskarnir tilvalinn tími til að bjóða upp á þvílíkt og annað eins hallærisband.

Vertinn er afar roggin og upp með sér að eiga trommuleikara í hljómsveit, sem án efa á eftir að njóta gríðarlegra vinsælda, fyrir mann. Einn galli er þó á gjöf Njarðar því trommuleikarann vantar trommusett með öllu tilheyrandi svo hægt verði að bjóða upp á almennilegt show og þeir sem eiga slíkt og þurfa ekki á því að halda geta látið Vertinn vita eigi síðar en innan tíðar.

Reyndar bar það svo við á þessu blóti eins og fleiri blótum að Vertinn var fengin til að semja vísur um blótsgesti. Lag Stuðmanna varð fyrir valinu og fékk ég ekkert um að ráðið enda var það trúlega mat nefndarinnar að þetta lag væri best til þess fallið að slá í gegn.

 Ég er á Vesturleiðinni/Stuðmenn

 

Við ætlum hér að syngja brag, við létt og lítið lag

og leikandi munum spila hér allir i takt. A- O-Ó

Hér sprækir við förum með glens og grín, það verður skemmtun fín

og rosaleg gleði, svo ekki sé meira  sagt.

 

Nú höldum þorrablót, mikið skulum við hafa gaman, gera at,

það mun allra meina bót, af þorramat að éta á sig gat.

 

Frá Sigló hér mætir sælleg snót, sem hleypur oft við fót

því Bryndís frá er á fæti og snögg upp á lag. A-O-Ó

Í stúkunni starfar af heilum hug, þar sýnir mikinn dug

og málarafjölskylda hennar kann hér sitt fag.

 

Önundur er mikið sjarmatröll, sextugur fer um völl,

samt virðist þó nokkur ern og vel með á flest. A-O-Ó

Svo ljómandi löghlýðinn löggumann, það segja má með sann

í stúkunni aðalkarlinn eins og hér sést.

 

Viðlag:

 

Anna svo róleg og létt á brá, og vinnur sýsla hjá

og lýtalaust hún talar með norðlenskum hreim. A-O-Ó

Hún reyndi að komast í karlakór, svona er hún hugumstór

en kórstjórinn sendi konuna beint aftur heim.

 

Á Bimmanum Þröstur á beinni braut, þar leysir hverja þraut

því hagleikssmiður hann þykir og ætíð svo hress. A-O-Ó

Af tengdapabba svo ríkur er, það sérhver maður sér

því hann gekk að eiga dóttur hans Geira Mess

 

Viðlag:

 

Af barnabörnum á kynstrin öll, sem geysast vítt um völl

og millinafninu Camilla skartar hún enn. A-O-Ó

Á sjúkrahúsinu starfar hún, ætíð svo létt á brún

því Sigrún er gefin fyrir eldri og reyndari menn.

 

Er Leifi svo glaðbeittur fer í frí, með fellihýsið aftaní

um landið ekur af festu um móa og mel A-O-Ó.

Á sjónum hann starfaði ár og síð, þótt væri blinduhríð,

nú hobbý bóndastarfið fer honum vel.

 

Viðlag:

 

Af Rúnari Guðmunds er  þetta helst, hann Ísfirðingur telst

við sjávarútveginn starfar í Súðavík. A-O-Ó

Hann þykist liðtækur bolta í, en fáir trúa því

því boltatæknin hjá honum er engu lík.

 

Hér spilað við höfum í einum takt, og gamansögur sagt

sem rúmast gæti í lítið rímna kver.A-O-Ó

En áfram svo gaman mun hér í kvöld, og gleðin sjálf við völd

og tímabært við teljum að hætta hér.

 

Viðlag:

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband