3.2.2008 | 19:25
Músin
Ég hef þann háttinn á þegar ég fer í hesthúsin dag hvern til að gefa hestunum tugguna sína að banka duglega í hurðina sem skilur hesthúsin frá forðageymslunni og sparka jafnvel fast í vegginn til að undirstrika það að nú fari Vertinn að birtast í öllu sínu veldi. Þetta er allt með ráðum gert því mýs eiga það til að skjótast um heyið þegar síst skildi. Ætíð hafa þær hlaupið í hendingskasti í felur og ég hef ekki orðið var við eina einustu mús á ferðum mínum í hesthúsin og hef því ávalt borið mig vel og hestarnir fengið nóg að býta og brenna.
Í dag brá svo við að ein ofurmús lét sér ekki segjast og ákvað að bjóða Vertinum byrginn. Hún hafði greinilega skipulagt þessa fólskulegu árás um tíma því hún stökk mjög ógnandi upp úr heyinu þegar Vertinn í sakleysi sínu ætlaði að grípa fangið fullt að gómsætu og ilmandi fóðri fyrir skepnurnar. Hún virkaði mjög ófyrirleitin er hún gjóaði hvössum augum til mín og var með æsilega ofbeldis tilburði sem gerðu það að verkum að Vertinn hljóp öskrandi út í guðsgræna náttúruna, sem nú er sveipuð snjóslæðu, og hljóp í skjól til Blesa gamla sem reyndi eftir fremsta megni að hughreysta téðan Vert og hleypa í hana kjarki.
Ég sá það að sjálfsögðu í hendi mér að þrátt fyrir hið illskulega yfirbragð músarinnar og ógnandi tilburði hennar til að ráðast á mig og rífa mig á hol, hafði ég stærðarinnar vegna þó nokkra yfirburði, og ákvað ég því eftir þó nokkra umhugsun að fara inn aftur og klára að gefa þessum vinum mínum eitthvað gott í gogginn enda voru hrossin sársvöng og bráðvantaði tugguna sína. Eftir að hafa barið heyið með strákústi til að fullvissa mig um það að músin væri á bak og burt hófst ég handa við mína daglegu iðju og hristi ilmandi heyið í haug og fór með hvern faðminn á eftir öðrum út fullan af braggóðu grasi til hestanna sem tóku mér fagnandi eins og ætíð.
Það var svo í restina sem þessi ofbeldishneigða mús stökk með ógnarhraða út úr fylgsni sínu og hljóp í áttina til mín og vígtennurnar lýstu upp hesthúsin og bilið á milli þeirra tanna var jafnlangt, ef ekki lengra, en bilið á milli augnanna á löxum í kræfustu veiðisögunum íslenskra laxveiðimanna. Ég taldi ljóst á þessu augnabliki að í næstu andrá yrðu dagar mínir taldir og mér fannst ég eiga eftir að gera svo margt á lífsleiðinni og í huga mínum fóru brot úr lífi mínu á hraða ljóssins. Ég var ekki tilbúin til að deyja fram í hesthúsum í dag enda sunnudagurinn bjartur og fallegur og ég átti eftir að lesa síðara bréf Péturs postula upp í kirkju fyrir sóknarbörn í söfnuði Hólshrepps til forna í tilefni af fermingu Lilju. Ég öskraði því sínu hærra en áður og hoppaði hæð mína til að verjast þessari ógnarmús sem leit úr fyrir að ætla að ráðast gegn mér og flá mig lifandi. Einhver innri kraftur blossaði upp í mér og komst ég á harðahlaupum frá þessari vá og út úr hesthúsinu. Blesi, Brá og Tenór horfðu á mig í forundran rétt sem snöggvast en héldu síðan áfram að gæða sér á gómsætu heyinu á meðan ég ákallaði skapara minn og guð minn og þakkaði frá hjartarótum fyrir að hafa sloppið ósködduð frá kvikindinu. Heyra mátti hávær hlátrasköll innan úr húsinu er þessi alræmda mús tísti í tryllingshlátri yfir aumingjaskap mínum er ég stóð sem lömuð hjá stóðinu og ég hugsaði henni þegjandi þörfina.
Ég komst heim eftir þennan æsilega leik og mér tókst þó með ágætum að lesa úr bréfi Péturs í síðari ritningarlestri í Hólskirkju og bað þess í hljóði að músin verði farin á morgun þegar ég fer að gefa. Vonandi verð ég bænheyrð.
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.