Sigga

 

Sigga

Lag: Nú liggur vel á mér

 

Hún unir sér alsæl langt upp í sveit

við Önundarfjörðinn á sælureit.

Í Tungu þar dvelur, dagana langa

Sigríður velur, að leita þar fanga.

Á gæðingum góðum ríður á fjöll

þar geysist hún glaðbeitt um víðan völl

á grösugum grundum, með kindum og hundum,

samt er ei sagan öll.

 

Í sveitinni gaman er, það sérhver maður sér

Þar stekkur hún sæl um grösuga grund

með Sigmundi hverja einustu stund.

 

Og heima hún stemmir bókhaldið af

þar nýtir það vit sem almættið gaf.

Við nánari kynni, oftast er gefið

að síkáti Simmi, taki í nefið.

Þó er hún ei með sorg eða sút

og staðföst á varir setur ei stút

og í þvottavél setur, sumar sem vetur

óhreinan tóbaksklút.

 

Í sveitinni gaman er, það sérhver maður sér

Þar stekkur hún sæl um grösuga grund

með Sigmundi hverja einustu stund.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband