31.1.2008 | 14:48
Nefndarkvennavísur
Hefð er fyrir því að syngja vísur um hverja nefndarkonu fyrir sig á þorrablótinu í Bolungarvík. Ég mun birta þær eina af annari hér á blogginu fyrir lesendur til að njóta. Margrét Ólafsdóttir á Geirastöðum ríður á vaðið í endalausum vísnabrögum sem ég orti um þessa kjarnorku kvensur sem voru með mér í nefndinni.
Magga
Lag: Það liggur svo makalaust ljómandi......
Svo sælleg úr Syðridal búkona ein
situr um skepnurnar teinrétt og bein.
þar búið hún vaktar í vöku og draum
og vafalaust fleiru hún gefur þar gaum.
Hæ dúllía.....
Víst hefur af hannyrðum gaman og gagn,
af prjónlesi framleiðir óhemjumagn.
Svo staðföst í Drymlu með formennsku fer
þar fýrug með prjónana unir hún sér.
Hæ dúllía..............
Hér póstinum dreifir um stræti og strönd
slíkt gerir hún ekki með hangandi hönd.
og rukkunarbréfin hún ber á þitt borð
án þess að segja eitt einasta orð.
Hæ dúllía...
Er Arnþór hér yfir sig námslöngun fékk
í skóla í Reykjavík óðara gekk.
Og námið á dögunum kláraði hann
nú situr hún uppi með sprenglærðan mann.
Hæ dúllia.............
Um bloggið
Vertinn í Víkinni
Tenglar
Bloggarar
Fréttir
- vikari.is
- bb.is
- mbl.is
- visir.is
- skip.is
- bolungarvik.is
- Lögregluvefurinn
- Heimsýn Hreyfing sjálfstæðissinna í Evrópumálum
- Bjarnarnes-Sjótaxi
- Freydís sf. Ferðaþjónusta
- Gesthouse Mánafell Gisting í Bolungarvík
- Raggagarður í Súðavík
- Heimasíða Einarshússins
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.6.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
vikari
-
hallasigny
-
omarjonsson
-
komediuleikhusid
-
katagunn
-
lydurarnason
-
jyderupdrottningin
-
ekg
-
sigrunsigur
-
majabet
-
skordalsbrynja
-
ingisund
-
gudfinna
-
sigmarg
-
maple123
-
730
-
730bolungarvik
-
grazyna
-
skodunmin
-
daglegurdenni
-
matthildurh
-
otti
-
vestfirdir
-
golli
-
kolgrimur
-
hressandi
-
gylfigisla
-
hugrenningar
-
jonatli
-
gudni-is
-
esterrut
-
toshiki
-
gudrunmagnea
-
101isafjordur
-
ylfamist
-
blossom
-
kaffi
-
gattin
-
ameliafanney
-
helgi-sigmunds
-
hross
-
skolli
-
thurygudm
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.