Víkin mín

 

Lag: Ísland er land þitt/Magnús Þór Sigmundsson

Texti: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

 

Víkin mín fríða í fjallanna sölum

Víkin svo fögur við ólgandi haf.

Víkin sem skartar svo fallegum dölum

Víkin sem Drottinn af góðmennsku gaf.

Víkin sem vonir í brjóstunum vekur

Víkin mun vandlega hlúa mér að.

Víkin sem huga minn alfarið tekur

Víkin í hjarta mér ætíð á stað.

 

Víkin með Bólin í bernskunnar minni

Víkin með börnin sín stór jafnt sem smá.

Víkin sem heillar við nánari kynni

Víkin með Bakkavík, Mjöllnir og Gná.

Víkin með Hólskirkju hátt upp á hólnum

Víkin sem heilsar hvern einasta dag.

Víkin hún klæðist æ fegursta kjólnum

Víkin sem kunnugt er, á sér sitt lag.

 

Víkin með Ósvör og vermanninn mæta

Víkin svo máttug með manni og mús

Víkin sem okkar svo glaðbeitt vill gæta

Víkin hún gefur oss íþróttahús.

Víkin hér lokkandi sundlaug svo góða

Víkin þér rennibraut lætur í té

Víkin víst hefur margt upp á að bjóða

Víkin það greiðir af almanna fé.

 

Víkin sem bátanna brosandi gætir

Víkin þá borubrött leiðir að strönd

Víkin sem grösugar grundirnar vætir

Víkin er leiðandi lífshjálparhönd.

Víkin hún til allra bolvískra barna

Víkin þá syngur sinn hljómfagra söng

Víkin senn garðinn hún fær hér til varna

Víkin brátt fær langþráð Óshlíðargöng.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna mín!

Mér er spurn, hvað borðar þú á morgnana? 

Gróa aftur (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 14:17

2 identicon

Ég tek undir með Gróu, þú ert snillingur og ég spyr eins og hún, hvað borðar þú á morgnana?

Jómmi (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 14:29

3 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Kaffi til að byrja með og kannski banana og drykkjarjógúrt þegar líður á daginn. Þegar mikið reynir á borða ég helst ekki neitt enda þurfa snillingar lítið að borða og eru sjaldan svangir

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 30.1.2008 kl. 21:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband