Bæjarbragur

 

Lag: Hagavagninn

 

Í tilefni af þessum tímamótum

svo töfrandi við syngjum lag.

Því hefð er fyrir því á þorrablótum

að flytja lítinn bæjarbrag.

Sem geymir alla gullmola um bæjarbúa

og gaman er að minnast á.

Sögusagnir flestar sem um bæinn fljúga

hér sannarlega heyra má.

 

Í sumar greip sig sólarpallaæði

og skjólveggirnir risu skjótt.

Þetta mátti sjá á stóru svæði

og smiðir unnu dag og nótt.

Í garði einum grösugum var brúað bilið

og komið fyrir göngubrú.

Nú enginn veit hvað Geiri gerir bak við þilið

við sína mætu ektafrú.

 

Í Bjarnabúð um himinbjartan daginn

broshýr kann að selja þér.

Þar Gunna Ásgeirs bíður þér í bæinn

vel þokkuð eins og vera ber.

Á hárstofunni sópar burtu gráu hárin,

í vinnu þykir eftirsótt.

Í Kjallaranum græðir gjarnan hjartasárin

er gengur yfir niðdimm nótt.

 

Hjá Stefaníu sáust tár á hvarmi

er húsið sitt hún yfirgaf.

En yfir því var ætíð mikill sjarmi

og útsýni hér út á haf.

Nú Stefanía nýtur sín á nýjum slóðum

það sérhver maður getur séð.

Í heita pottinn    hendist hún á degi góðum.

og Olgeir fær að fljóta með.

 

Eitt Ratsjárhúsið rogginn Ásgeir keypti

þar röskur varð að byggja við.

Við húsið ótal ranghala hann steypti

svo stækkað gæti heimilið.

Nú kotroskin þau hjónin út á Bökkum búa

þar sungin er sú bænagjörð,

að yfir Djúpið takist honum fljótt að brúa

svo styttra verð'i í Leirufjörð.

 

Hann þykir einn af landsins vænstu sonum,

sem finnast hér um víðan völl.

Hann vonir vakti hér hjá mörgum konum

því Vignir þykir sjarmatröll.

Og Katrín kappann klófesti á augabragði

nú konan þykir kampakát.

Og fljótlega í lítinn strákahnokkann lagði

nú rær ei lengur ein á bát.

 

Í Hólshreppi fór grjóthrunið að skríða

niður hlíðar allt um kring.

Og unun var á hljómfallið að hlýða

er ómaði um fjallahring.

Ef bæjarstjórinn bassann spilar fyrir yður,

og dimmur verður takturinn.

Þá handjárna þeir sveininn strax og sprauta niður,

lögreglan og læknirinn.

 

Í upphafi skal endinn ætíð skoða

og líta yfir liðna tíð.

Hann Baldur vildi breytingar hér boða

og fjölga hér í erg og gríð.

Í næsta bæ var kappinn ekki seinn að finna

sér fýruga og flotta frú.

Og segja má að hann sé maður orða sinna

því núna á hann barn og bú.

 

Þær samstíga úr bænum skildu flytja

og setjast að á danskri grund

Er Valrún fróma landsins vildi vitja

þá Ylfa Mist var í þann mund

að flytja aftur fagnandi á heimaslóðir

og leiðin heim var bein og greið.

Á krossgötum þær kvöddust segja menn hér fróðir

er mættust þær á miðri leið.

 

Af faraldri þær fregnir héðan flugu,

og fréttamiðlar gerðu skil.

Um lúsargrey sem blóðið ákaft sugu

úr mönnum svona af og til.

Hér skyndilega greip um sig sá ofsakláði

og varla var þar sjón að sjá

er lofthræddar hér lýsnar ei með réttu ráði

lögðust bæjarstjórann á.

 

Hún Þuríður var þjóðleg landnámskona

og þokkuð eins og vera ber.

Hún seiddi fisk til landsins fornu sona

og ríkjum vildi ráða hér.

Hún vaknaði til lífsins eftir langan dvala

og mörgum varð þá um og ó,

í snatri var hún send á ný til fjallasala

þar lagðist hún til svefns...og dó.

 

Þær konur sem af kunnáttu hér hafa

kafað oní hvers manns kopp

og utan af því eru ekki ekki skafa

telja tímabært að segja stopp,

því táp og fjör skal vera hér í þessu teiti

og taumlaus gleði nú við völd.

Með von að þessi fagnaður nú flestum veiti

fína skemmtun hér í kvöld.

 

Höf: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ragna þú ert snillingur, ég get sungið þetta

Gróa Stefánsdóttir (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 10:44

2 identicon

Frábær bragur um frábæra Vík:) Glæsilegt hjá þér Ragna;)

Karitas S. Ingimarsd. (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 13:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband