Ræða formanns

IMG_2112Ágætu þorrablótsgestir.

Ég vil fyrir hönd okkar nefndarkvenna bjóða ykkur hjartanlega velkomin á þorrablótið í Bolungarvík árið 2008

Sá siður hefur haldist nær óslitið frá árinu 1944 að konur í Bolungarvík bjóði bónda sínum til blóts á fyrsta laugardegi i þorra. Hefð er fyrir því að konur mæti í íslenskum þjóðbúningum og karlar mæta í æ ríkara mæli í hátíðarbúningi og mikil reisn er yfir þorrablótsgestum. Þetta þorrablót er orðið vel þekkt um allt land fyrir þær sérstöku venjur sem á blótinu ríkja enda hefur að mestu verið haldið í þær hefðir sem settar voru í upphafi og því þykir blótið einstakt í sinni röð.

Nú er brotið blað í sögu þorrablótsins, en það hefur verið haldið frá árinu 1953 í Félagsheimili Bolungarvíkur. Án efa hefur mikill hátíðleiki svifið um sali þess nýja húss er þorrablótið var haldið þar í fyrsta sinn, þann 24 janúar fyrir fimmtíu og fimm árum, og trúlega hafa þær 40 krónur sem fengust í ágóða af þeirri skemmtun, þótt fjársjóður út af fyrir sig.

Núna í ár hefur íþróttahúsið Árbær hlotið þann heiður að hýsa þennan merka viðburð. Ástæðan er trúlega flestum kunn, en nú standa yfir alsherjar endurbætur á Félagsheimilinu og mikið kapp er lagt á að reisa það aftur til vegs og virðingar. Það hús var reist af miklum dugnaði og eljusemi bæjarbúa um miðja síðustu öld og hefur þjónað sínu hlutverki með ágætum.

Það þótti nokkuð ljóst í upphafi að það yrði krefjandi verkefni að flyta skemmtun sem þessa um set en jafnframt mátti telja öruggt að ný tækifæri myndu skapast sem varpað gætu framandi ævintýraljóma á skemmtunina. Jákvæðni og bjartsýni hefur einkennt alla vinnu sem tengst hefur þessu þorrablóti og allir þeir sem lagt hafa hönd á plóginn til að gera kvöldið sem veglegast hafa gert það af mikilli gleði og ánægju.

Sú bjartasta von sem býr í brjóstum Bolvíkinga þessa dagana umvefur sviðið hér í kvöld. Jarðgöngin sem eru lýsandi tákn fyrir þau framfaraskref sem Bolvíkingar eru að stíga um þessar mundir og klettabeltin sem hér falla að íþróttasölum, í stað fjallasala, vekja traust og trú á framtíð byggðarlagsins. Þessi jarðgöng sem verja nefndarkonur fyrir grjóthruni og skriðuföllum þurftu reyndar ekki að fara í úboð og þetta mannvirki kostar enga milljarða en uppbygging þess  leiddi saman fólk úr ólíkum áttum sem vann að því að gera gáttina að gullkistu Þuríðar sundafyllis greiðfæra og umhverfi þorrablótsins í Bolungarvík sem best úr garði.

Eins og venja er til á fagnaði sem þessum þykir við hæfi að brýna raddböndin í söng og mun Benedikt Sigurðsson stýra fjöldasöng undir stjörnubjörtum himni hér í kvöld. Eru blótsgestir hvattir til að taka vel undir með Benna og láta raddir sínar óma óhikað um salinn.

Þess ber þó að geta, að umfram allt er maður manns gaman og ekki er efast um það eina einustu stund af yfirfull trog af súrmat og öðru góðgæti í bland við guðaveigar og góða skapið muni skapa það andrúmloft sem við öll sækjumst eftir á þorrablótinu í Bolungarvík og sveipa það hátíðleika og ævintýraljóma.

Að endingu er það von okkar nefndarkvenna að þið getið átt skemmtilega kvöldstund með okkur og notið þess sem við höfum upp á að bjóða og segi ég þorrablótið í Bolungarvík árið 2008 sett og bíð ykkur að gjöra svo vel.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband