Litlir vinir

IMG_2079Ekki er hægt að segja annað en að bolvískar borkonur hafi slegið í gegn á þorrablótinu enda æði vígalegar í atgerfi öllu og útliti. Það þótti vel við hæfi í lokaatriðinu að leggja upp með það að þessar kjarnakerlingar, sem höfðu að geyma nefndarkonur innanklæða, tækju sig til og gripu í þar til gerða " bora" til að sprengja haftið á Þuríði sundafylli. Það gekk eins og smurt enda boruðum við allar í takt svo við náðum á leiðarenda að lokum. Þessir "borar" sem ég kýs að kalla "litlu vini" voru keyptir í virtri hjálpartækjabúð á höfuðborgarsvæðinu sem sérhæfir sig í tækjum og tólum til að lífga upp á ástarlíf landsmanna. Vertinn hafði reyndar beitt öllum sínum persónutöfrum símleiðis til að fá afslátt af herlegheitunum og fékkst 25% heildarafsláttur ef keypt væri rúmlegt tylft af þessum titrandi tólum sem veita unað og alsælu. Vertinn lagði þó ríka áherslu á það þessir töfrandi titrarar færu allir til kvenna búsettum í Vogum á Vatnsleysuströnd enda væri þar orðið æði fátt um fína drætti og karlpeningurinn þar vart gagnlegur til nokkurns brúks. Ekki gat ég fyrir nokkurn mun vakið athygli á því að þessir " litlu bræður" myndu enda í Bolungarvík og kasta þar með rýrð á karlmennsku okkar húsbænda enda engin ástæða til að gera lítið úr þeim. Ein nefndarkvenna var send út af örkinni til að nálgast þessa munaðarvöru í henni Reykjavík og kom hún klifjuð " litlum körlum" hingað vestur sem gerðu svo sannarlega sitt gagn á þorrablótinu í Bolungarvík í ár. Það skal ósagt látið hver framtíð þessara "litlu félaga" verður enda algjör óþarfi að ljóstra upp öllum leyndarmálum á blogginu.

Hér fylgir textinn "Bora göng" sem saminn var við lagið " Meira dót" sem hljómsveitin Buttercup gerði af stakri snilld. Á myndinni má sjá bolvískar valkyrkjur við gættina að gullkistu Þuríðar sundafyllis, tilbúnar í slaginn.

 

 

Við ætlum hér að bora göng, rosalega breið og löng

út úr bænum.

Hér fara kraftakellingar, sem setja sig í stellingar

í einum grænum.

 

Viðlag:

:Bora, bora göng, bora göng, undir Þuríði: x 3

bora, bora göng, bora göng.

 

Það verður mikil gleðifregn, þegar náum við í gegn

þá liggur leiðin,

beina leið í næsta bæ, vísast verður alltílæ

og greiðfær heiðin.

 

Viðlag:

 

Eins og bolvískar valkyrjur, haftið munum sprengja burt

við borum í takt, það mun ganga eins og smurt.

 

Viðlag:

 

Bora, bora............................................bora

 

Höf: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Elsku Ragna

Já það er ekki frá því að allur vindur sé úr manni eftir at síðustu vikna. Mest hefur þó vissulega mætt á þér enda bæði höfundur og leikstjóri auk þess að gegna formennsku í þessari bráðskemmtilegu nefnd. Ég er afskaplega ánægð með að hafa verið svo heppin að lenda með þér í báðum þorrablótsnefndunum sem af er. Ég tek undir með þér að ég sakna ykkar allra og kvöldin eru hálfundarleg svona fyrst á eftir. Vonandi hittumst við sem fyrst aftur og sem oftast. Við höfum örugglega nóg til að hlæja að. Og mikið innilega er ég sammála þér: Við vorum náttúrulega alveg frábærar :)

Sólrún Geirsdóttir (IP-tala skráð) 28.1.2008 kl. 21:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband