Þorrablótið afstaðið

IMG_2096Þorrablótið er afstaðið og allt fór eins og til var ætlast. Ég er afar ánægð með hvernig til tókst og er í sæluvímu með viðtökurnar. Allt gekk eins og smurt og við stelpurnar í nefndinni vorum hreint æðislegar. Mikið var hlegið þegar við gerðum grín af hinum og þessum sem áttu skilið að rata inn á þessa kvöldskemmtun og ekki skemmdi sviðsmyndin fyrir sem umlukti sviðið. Hún var táknræn fyrir þá tíma sem Bolvíkingar eru að stefna inn í um þessar mundir og jarðgöngin , sem reyndar seinna breyttust í leggöng, sköpuðu ævintýraljóma sem gerði kvöldið einstakt og eftirminnilegt. Segjast verður alveg eins og er að úr mér er allur vindur eftir at undanfarna vikna en þessi tími er búin að vera einstaklega skemmtilegur og ég er strax farin að sakna samverustundanna með stelpunum. Á myndinni hér til hliðar má sjá hluta af nefndarkonum standa í einfaldri röð er blótsgestir gengu í hús. Fjölmargir karlmanna notuðu tækifærið og kysstu þessi föngulegu fljóð er þeir gengu í salinn og voru þeir uppnumdir það sem eftir var fyrir vikið. Ég læt fljóta með upphafslagið sem er af nýjasta diski Millanna og ber lagið heitið "Við elskum þig nú samt" og er þessi texti eftir mig.

 

Á samkomu í Víkinni, skal gleðin taka völd,

nú sælar höldum þjóðlegt Þorrablót.

Við bjóðum hingað körlunum og berum í þá mat

það þykir vera allra meina bót

að torga barmafullu trogi og leifa ekki rót.

 

Hangikjötið gómsæta og hupparnir í bland

hrútspungarnir bestir upp úr súr.

Hákarlinn svo ilmar vel og  harðfiskurinn með

himneskur er þessi matarkúr

sem borinn er á hvers manns borð, svo kasúldinn og klúr.

 

Já, nú saman erum hér,

skemmtilega kvöldstund viljum eiga hér með þér.

Því sameinaðar stöndum vér, það sérhver maður sér.

Við þorra núna blótum

og stundarinnar njótum,

gleymum öllum raunum nú og  lofum þetta blót.

Já, þetta blót.

 

Eftirréttur ef til vill í boði verður svo

ef þarf að fylla allt þitt allt magamál.

Drykkir nokkuð göróttir, gægjast hér og þar

og glettin syngjum saman, flest við skál

þá hljómar undurfögur sérhver bolvísk gæðasál.

 

Valsinn mun svo duna dátt við næturinnar stef

og dillandi við dönsum hér í kvöld.

Taumlaus reynist takturinn við hvert eitt spor og skref

og töfrandi í þjóðbúningafjöld.

Hér mun verða mikill glaumur þegar gleðin tekur völd

 

Já, nú saman erum hér,

skemmtilega kvöldstund viljum eiga hér með þér.

Því sameinaðir stöndum vér, það sérhver maður sér.

Við þorra núna blótum

og stundarinnar njótum,

gleymum öllum raunum nú og  lofum þetta blót.

Já, þetta blót.

 

Höf: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband