SÍBS

Nýtt happdrættisár hefst á morgun í happdrætti Sambands íslenskra berkla og brjóstholssjúklinga eða SÍBS. Vertinn í Víkinni hefur verið umboðsmaður happdrættisins til margra ára og notar því " dauða" tímann til að sinna happdrættinu þegar þurfa þykir. Það er gott að geta hlaupið í svona smáverk þegar ekkert annað er að gera Crying. Saga berklaveikinnar er samofin sögu Péturshúss því Pétur Oddsson missti fjölskyldu sína að mestu úr berklum svo það á því vel við að ég sinni þessu verki. Hver og einn sem áhuga hefur á því að styðja við þetta góða málefni eru hvattir til að fá sér miða og spila með.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ylfa Mist Helgadóttir

Er Péturshús það sama og Einarshús? Spyr stúlkan að sönnan sem ekkert veit.....

Ylfa Mist Helgadóttir, 15.1.2008 kl. 14:04

2 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Pétur Oddsson byggði húsið árið 1902 og þá upphófst mikil sorgarsaga, því á 23 ára tímabili fylgdi hann 14 líkum frá þessu húsi sínu og flestir létust af völdum berkla. Þá var húsið í daglegu tali nefnt Péturshús en eftir dauða fyrrnefnds Péturs flutti annar athafnamaður í húsið og fljótlega upp úr því urðu nafnaskipti á húsinu. Frá því að ég man eftir mér hefur húsið ætíð verið kennt við Einar Guðfinnsson en ég hef reynt að halda sögu þeirra beggja á lofti eftir fremsta megni. Einar Guðfinnsson átti mjög góðan tíma í húsinu á meðan hann dvaldi þar með fjölskyldu sinni svo húsið ber með sér mikla sögu, bæða harma og hamingju og sorgar og gleði.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 15.1.2008 kl. 15:54

3 Smámynd: Ester Rut Unnsteinsdóttir

harmasaga - en hvernig ætli stýrið hafi komist þangað? skipið strandaði á Mýrunum á Snæfellsnesi, var það ekki ...?

- spyr önnur stúlka að sönnan, forvitin eins og hin.. 

Ester Rut Unnsteinsdóttir, 16.1.2008 kl. 17:48

4 Smámynd: Ragna Jóhanna Magnúsdóttir

Pourquoi Pas ? strandaði á skerinu Hnokka undan Mýrunum í Borgarfirði þann 16. september árið 1937. Stýrinu var bjargað úr flakinu og það var varðveitt í skúr sem stóð á Mýrunum í nokkur ár eða þar til hópur vaskra manna náði í það til varðveislu. Barnabarn eins þessarara manna eignaðist svo stýrið eftir afa sinn og geymdi það á góðum stað í mörg ár. Við fengum spurnir af þessu stýri í gegnum mág minn sem er mikill safnari og þannig komst það í okkar hendur. Við þurftum að sjálfsögðu að kaupa það dýrum dómum en við töldum að það ætti heima í húsinu hjá okkur. Mörg hafa komið tilboðin í þetta merka stýri en það er ekki falt.

Pourquoi Pas? lagði í síðustu ferð sína úr höfn frá Ísafirði svo við teljum vel til fundið að stýrið fái að njóta sín í sjávarþorpi á Vestfjörðum og Einarshús/Péturshús í Bolungarvík best fallið til að veita því húsaskjól, því úr þessu húsi var Bolungarvík stjórnað fyrripart síðustu aldar af helstu athafnamönnum þjóðarinnar á miklum uppgangstímum.

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir , 16.1.2008 kl. 23:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (25.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband