Vertíð

Vertíð er hjá Vertinum í Víkinni um þessar mundir og mikið að gera. Jólahlaðborð í bland við árshátíðir og önnur veisluhöld hertaka allan daginn og unnið er fram á rauða nóttina við að stjana við gestina mína og fá þá til að njóta verunnar í húsinu mínu.

Tónleikar Mysterious Mörtu fóru afskaplega vel fram og frumflutti hún afurð sína á Mysterious Martafimmtudagskvöldið og tókst það með miklum ágætum. Ljúfir og góðir tónar flutu um Kjallarann og söngvaseiður færði ró yfir mannskapinn. Stelpan hefur undurþýða rödd og stóð sig með prýði. Ég vona að hún sjái sér fært að koma aftur síðar.

Halla les úr jólabók

Guðdómleg gúllassúpa var í boði í hádeginu á föstudag og las Halla Signý Kristjánsdóttir upp úr jólabók. Múgur og margmenni kom til að hlusta og súpan rann ljúflega niður í gesti. Tilvonandi jarðgangamenn, sem koma til með að bora í gegnum Óshlíðina, voru einnig svo lánsamir hlýða á Höllu lesa og mun það án efa verða þeim gott veganesti inn í þá vinnu sem fyrir þeim liggur framtíðinni í tengslum við göngin, en þeir voru hér vestra að kynna sér aðstæður. Það þótti að sjálfsögðu tilhlýðilegt að hefja langferð Óshlíðarganga í húsinu þar sem allar ákvarðanir varðandi framfaraskref í byggðarlaginu voru teknar á árum áður og mun góður vilji fyrrum íbúa hússins til eflingar byggðarlagsins fylgja verktökum eftir til góðra verka.

Snittur og aðrar trakteringar vegna útdeilingu styrkja til menningarviðburða á Vestfjörðum var útdeilt á Náttúrugripasafninu um miðjan föstudaginn og enginn þótti betur til þess fallin að sjá um veitingar en einmitt Vertinn í Víkinni. Vertinn hafði reyndar í öllu sínu veldi sótt um styrk í þetta háa Menningarráð en hlaut ekki náð fyrir augum nefndarmanna, enda var ekki við því að búast. Haldið verður þó áfram að safna merkum munum í húsið og sögunni um Einar Guðfinnsson og Pétur Oddsson verður áfram haldið á lofti og hún mun áfram fylgja mínum gestum út í framtíðina. Áfram mun ég viða að mér ljósmyndum og koma þeim í viðunandi horf fyrir alla til að njóta. Áfram mun ég monta mig af því að eiga í fórum mínu stýrið úr merkustu skútu allra tíma og áfram mun ég leyfa gestum og gangandi að berja þá fágætu muni sem prýða húsið augum. Áfram mun ég byggja upp það safn sem ég hef komið mér upp í húsinu og áfram mun ég kaupa muni héðan og þaðan úr veröldinni dýrum dómum til að glæða þetta stórmerka hús lífi. Ég mun áfram efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu í Bolungarvík enda er ég búin að vinna að því verki undanfarið af bestu getu.  Ég og Elvar Logi hjá Kómedíuleikhúsinu erum að fara í samstarf um að segja sögu hússins og glæða hana frekara lífi og hvergi verður vikið af þeirri braut enda mun ég, eins og allir aðrir, uppskera eins og ég hef sáð ....að lokum.

Helga Guðrún við jólatréðÁrshátíð Sparisjóðsins og Sýslumannsins var haldin á föstudagskvöldið og tókst með miklum ágætum. Þar var Vertinn í gestshlutverkinu enda var mér boðið í herlegheitin og naut mín eins og frekast var unnt. Ég á reyndar svolítið erfitt með að sleppa takinu og láta aðra sjá um hlutina og nýt mín því ekki til fulls fyrir vikið. Mér finnst alltaf allt vera á mínum herðum þrátt fyrir það að vera með fyrirtaks starfsfólk á mínum snærum. Ég verð að fara að læra að sleppa takinu en það er eitt af því sem ég læri vonandi í Tólf sporunum sem ég reyna að feta á lífsins braut í friðarsetrinu Holti. Á myndinni hér til hliðar má sjá fagurt fljóð við jólatréð í Einarshúsi en það stendur á gömlu kamínunni sem notuð var til að kynda Stúkuhúsið hér forðum og við fengum til eignar þegar það hús var rifið. Á þeirri kamínu var hitað súkkulaði til að dreypa á milli dansa og dufls og daðurs hér á árum áður. Ýmsir merkis munir úr Félagsheimilinu sem á leið voru á ruslahauga staðarins munu einnig koma til með að prýða veggi Einarshúss í framtíðinni en fyrir furðufugla eins og okkur þykja slíkir munir gull og gersemar sem við viljum varðveita um aldur og ævi.

Jólahlaðborðið gærkvöldi var alveg frábært og tókst vel í alla staði. Þar sátu 60 manns í góðu Jónas á jólahlaðborðisamlyndi og skemmtu sér hið besta. Ég var á nálum að það yrði þröngt fyrir allan þennan hóp en plássið dugði og allt gekk eins og í sögu enda aðlagar Einarshús sig að öllum þeim sem vilja sækja húsið heim. Maturinn frábær að vanda enda sáu miklir meistarakokkar um eldamennskuna og Jónas Guðmundsson stýrði veislunni styrkri hendi. Benni og Halli sungu svo út í rauða nóttina og dansaður var trylltur dans upp við stóra sviðið og Vertinn lét ekki sitt eftir liggja í dansinum enda sá fyrirmyndarbarþjónninn Þorsteinn Haukur um barinn og ég var því laus flestra mála. Þreytan var þó farin að segja til sín þegar rennt var í hlaðið heima klukkan hálf fimm í nótt eftir langa og stranga törn.

Fermingarbarnið sem ég á í fórum mínum flytur helgileik á Aðventukvöldi í kvöld í Hólskirkju svo stefnan er tekin á Grundarhólinn í kvöld. Mér er mjög mynnisstæð ræðan sem ég flutti á þessu sama aðventukvöldi í fyrra þar sem ég upplýsti ferð mína á Vog og ástæður hennar, auk hugleiðinga minna um lífið og tilveruna. Aldrei hef ég haft eins góðan áheyrendahóp og kirkjugestir hlustuðu opinmynntir á ræðuna mína og grafarþögn umlukti fallegu kirkjuna mína og börn og fullorðnir hlustuðu með mikilli athygli. Hvergi fannst mér betra að segja sögu mína í fyrsta skipti opinberlega en einmitt þar og ég hugsa til þess með mikilli hlýju hvað mér var vel tekið. Eftir athöfnina gengu flestir til mín og umföðmuðu mig og óskuðu mér alls góðs og ég mun aldrei gleyma þeirri stund. Það segir ekki lítið að hafa gott fólk á bak við sig þegar stormurinn æðir áfram í lífsins norðan strekkingi og ólgusjó.

Nú er aftur á mót logn í mínu lífi og sjórinn tiltölulega spegilsléttur og ljúfur andvarinn strýkur kinnar mínar ljúft og létt en bíður engu að síður vertíðarloka með óþreyju.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Vertinn í Víkinni

Höfundur

Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Ragna Jóhanna Magnúsdóttir
Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Nýjustu myndir

  • Konukvöld 2014
  • ...a_fimmtudag
  • ...img_0326
  • ...img_0327
  • ...img_0319

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.6.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 20
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband